Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Síða 6
4
Háttvirta samkoma.
Við þessa háskólasetningu er þess að minnast, að á um-
liðnu háskólaári urðu nokkrar breytingar á kennaraskipun
háskólans. Einn kennari kvaddi háskólann, prófessor Lárus
H. Bjarnason, er var skipaður dómari i hæstarjetti í árslok
1919, en hafði með höndum kenslu hjer við háskólann fram
á umliðið háskólaár. Hann hafði verið prófessor í lagadeild
háskólans síðan háskólinn var stofnaður og áður forstöðu-
maður lagaskólans. Og er hann nú víkur hjeðan á brott vil
jeg í háskólans nafni þakka honum fyrir starf hans hjer í
þarfir háskólans, íslenskrar lögfræði og lagakenslu, og óska
honum allra heilla og frama i hinni nýju stöðu lians. Tveir
nýir kennarar hafa komið að háskólanum, þeir prófessor
Magnús Jónsson i lagadeild og settur prófessor, dr. phil. Páll
Eggert Ólason í heimspekisdeild. Pessa nýju slarfsmenn liá-
skóla vors vil jeg bjóða velkomna hingað og árna þeim allra
heilla og vísindaframa.
Háskóli vor hefir nú starfað í 10 ár. Það er því ef til vill
ástæða til þess, einmitt nú við þetta tækifæri, að minnast
nokkuð á hag hans nú og að undanförnu, og á framtiðar-
liorfur hans. Einnig mætti spyrja um árangurinn af staríi
hans hingað til og um það, hvort vonir þær, er til hans voru
settar i upphafi, hafi rætst eða brugðist. Peirri spurningu ætla
jeg þó ekki að svara. Bæði er málið of skylt oss kennurum
háskólans til þess að vjer tökurn oss dómsvald í því, og
auk þess er starfstími háskólans enn of skammur til þess að
dæmt verði með rökum um árangurinn af starfi hans. Það
mál verður háskóli vor að leggja undir dóm síðari tíma
manna. Og trú mín er sú, að háskólanum sje það óhætt, að
dómurinn muni á sínum tíma verða á þá leið, að eftir al-
vikum hafi starf háskóla vors hepnast vel, að stofnun hans
liafi verið framfara- en ekki afturíararspor i menningarvið-
leitni þjóðar vorrar. Hitt vildi jeg leyfa mjer að minnast á
með nokkrum orðum, hag og einkum horfur háskóla vors,
það hlutverk, sem honum er ætlað að vinna, hvort unt muni
að leysa það af hendi og þá með hverjum hætti.