Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Blaðsíða 55
53
irr.
Lög
fyrir- lánssjóð stúdenta.
1. gr.
Tilgangur «Lánssjóðs stúdenta® er að styrkja með hagkvæmum pen-
ingalánum fátæka stúdenta við Háskóla íslands.
2. gr.
Lán veitist einkum stúdentum, sem eru að ljúka námi. Stúdentum,
sem eru að byrja nám, má ei veita lán, nema sjerstakar ástæður sjeu
fyrir hendi og þá að eins bráðabirgðalán.
3. gr.
Tekjur sjóðsins eru:
a. Árleg tillðg allra skrásettra háskólanema.
b. Árgjöld annara.
c. Gjaflr, sjóðir o. s. frv.
4. gr.
Lán skal veita gegn gildri tryggingu, sem nánar er ákveðin í starfs-
reglum sjóðsins. — Lágir vextir skulu greiddir af láninu, með gjald-
daga tvisvar á ári. — Fulltrúaráðið getur, ef starfsnefnd mælir með
pví, og ef það álítur það æskilegt, gefið lán eftir að nokkru eða
öllu leyti.
5. gr.
Sjóðnum stýrir fulltrúaráð og starfsnefnd. Fulltrúaráðið er þannig
kosið:
Háskólaráðið velur einn fulltrúa.
Stúdentaráðið velur annan og
Stjórnarráðið þann þriðja.
Fulltrúaráðið skal valið fyrir árslok, lil þriggja ára í einu.
Forfallist fulltrúi skal stofnun sú, er hann kaus, vclja annan í
hans stað.
6. gr.
Fulltrúaráðið er æðsta stjórn sjóðsins. Velur það sjer formann,
sem tvisvar á ári, í 1. og 3. ársfjórðungi, boðar til fundar og endrar-