Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Blaðsíða 64
62
Sjúlirasiódiirinn.
Neindin frá fyrra starfsári hafði lagt fram frumvarp að reglum fyr-
ir sjóðinn. Háskólaráðið fjelst ekki á það. Læknafjelagi Reykjavíkur
var sent frumvarpið til athugunar og umsagnar. Nefnd úr pví fjelagi
rjeði frá framkvæmdum á málinu á peim grundvelli, sem lagður var
i frumvarpinu. Málið var pví lagt á hilluna að svo stöddu.
Almenn starfsemi.
Loks hefir stúdentaráðið haft með höndum flestöli málefni háskóla-
stúdenta, bæði gagnvart háskólaráðinu og gagnvart einstaklingum og
stofnunum út á við.
A fyrra starfsári hafði háskólaráðinu verið skrifað og bornar fram
óskir stúdenta, um breytingar á embættisprófi í læknadeild. 6. des-
ember 1921 tilkynti háskólaráðið brjeflega að prófinu hefði verið breytt
í samræmi við óskir stúdentaráðsins. 12. desember 1921 óskaði stúd-
cntaráðið pess brjefiega, að háskólaráðið stofnaði «Kursus» i bókfærslu
i sambandi við lagadeild. Háskólaráðið hefir einnig orðið við pessari
ósk. 24. april 1922 óskaði stúdentaráðið pess, að háskólaráðið legði
fram aðstoð sína og tillögur um að taka upp fúllveldisdaginn sem
hátíðisdag háskólans. Því hefir enn ekki verið ráðið til lykta. 28. april
1922 sótti stúdentaráðið um 1000 króna styrk úr sáttmálasjóði til að
standast allra nauðsynlegustu útgjöld, svo sem útgjöld við stúdenta-
skiftin, útgjöld við upplýsingaskrifstofuna og hinn daglega kostnað
sem leiddi af starfi stúdentaráðsins yfirleitt. Ennfremur sótti pað um
1000 kr., til afborgunar ríkissjóðsláni til «Mensa»; en pað lán hafði
fengist aðallega fyrir pað, að háskólaráðið hafði talið sama sem víst,
að árlega yrðu veittar, eins og verið hafði áður, 1000 kr. til húsbygg-
ingarsjóðs stúdenta, sem skyldi síðan renna til greiðslu pessu láni.
Háskólaráðið veitti 1500 kr. til «Mensa» en ekki eyri til stúdentaráðs-
ins. Siðastliðið starfsár hafði háskólaráðið veitt 500 krónur til stúd-
entaráðsins. Starfið petta ár hefir verið margfalt umfangsmeira og
kostnaðarsamara en fyrra árið. Stúdentaráðinu finst pað pví hafa
orðið mjög hart úti í petta sinn, og ekki er annað fyrirsjáanlegt, en
að pað muni neyðast til að leggja niður störf, ef pví kemur ekki fje
einhvers staðar að. 4. júlí ’22 var útgerðarfjelaginu Kveldúlfi skrifað
og óskað eftir ókeypis ferðum fyrir stúdenta árlega, með skipum peim
er pað fjelag sendir til Miðjarðarhafslandanna. Fjelagið tók peírri ósk
vel, en vegna skipaskorts, sem pó myndí brátt ráðast bót á, gætu
pessar ferðir ekki tekist strax. Auk pessa var fjöldi brjefa skrifaður
um ýms mál stúdenta. Seinni hluta sumars annaðist stjórn stúdenta-
ráðsins útvegun ibúðarherbergja handa stúdentum, og leitaði fyrir sjer
um leigu á húsi, sem taka mætti til stúdentabústaðar i bráðina. Slíkt