Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Blaðsíða 61
59
unum, sCm samið hafði verið við um afslátt af verðinu. Mánaðarlega
var öllum kostnaði að frádregnum nokkrum hluta þess, er inn hafði
komið fyrir veitingar, jafnað niður á þá, er borðað höfðu. En nokkur
hluti veitingafjárins var lagður fyrir, til að standast væntanlega fyrn-
ingu og endurnýjun innanstokksmuna og önnur ófyrirsjáanleg útgjöld.
Fæðið var oftast um kr. 100.00 — dýrast kr. 116.00 í desember og
ódýrast kr. 96.00 i febrúar. Veitingarnar gátu stúdentar keypt lægra
verði en alment var á öðrum veitingahúsum. Sú stefna var strax tekin
að 'hafa fæði og veitingar sem fullkomnast, þótt dýrara yrði, enda
mun það hafa jafnast á við það, er best var á öðrum matsölu- og
veitingahúsum.
Ýmsir af ágætustu listmálurunum hafa lánað málverk til að prýða
veggi «Mensa». Undir vorið var keypt piano og fjórðungur verðs
greiddur með samskotafje frá háskólastúdentum, en hitt frá Mensa.
í byrjun maímánaðar barst stúdentaráðinu tilboð frá umboðsmanni
húseiganda um húsnæði til aukningar «Mensa». Stúdentaráðið leitaðist
þá fyrir um samninga við Stúdentafjelag Reykjavikur; bauð «Mensa»
til fundarhalda allan leigutímann, 4 ár, gegn ákveðnu gjaldi. Stúdenla-
fjelagið neitaði því tilboði. Seinna sótti stúdentaráðið um fjárstyrk til
sama fjelags í sama augnamiði og bauð sjerstök hlunnindi i staðinn.
Pví var einnig neitað. Samt var viðbótin tekin, og «Mensa» stækkuð
nálega um helming, eftir tillögum forstöðunefndar. Kostnaður við þetta
var greiddur allur af spöruðu veitingafje. Samkv. reglum fyrir M. a.,
(gerðabók stúdentaráðsins bls. 20—23), er reikningsár fyrirtækisins al-
manaksárið. Hjer er því ekki hægt að gefa full reikningsskil. En þessa
10 starfsmánuði sem af eru, nam vörukaup og áhalda, reksturskostn-
aður og breyting hússins sem næst kr. 64.323.47. Virðist hagur fyrir-
tækisins sem stendur fyllilega tryggur.
Slíkt var starf «Mensa» það, er skýrsla verður skrifuð um. Hin hlið-
in, þátturinn stærsti í fjelagslífi stúdenta, er margsnúnari en svo, að
hann verði metinn til fjár, eða miðaður við «umsetninguna». Pó að
skamt sje veggja i milli á «Mensa» og ekki nema seiling undir súð,
hefir þar þó verið meiri menning og bjartari gleði, en vera mun í
mörgum sölum háum og viðum. Sárt tekur stúdenta fátæktin og fje-
leysið, cn «Mensa» er þeim þó auðlegð, sem þeir gætu varla liugsað
til án að vera, svo mjög á stofnunin hylli þeirra.
Stúdentaskiítin.
Annað raeginmál, sem stúdentaráðið hefir borið upp á þessu ári, er
stúdentaskiftamálið. í fyrra starfaði nefnd hjer í bæ að stúdentaskift-
um við Þýskaland. Árangurinn af starfi hennar var sá, að tveir þýskir
stúdentar voru hjer síðastl, vetur, við norrænunám í háskólanum. Að