Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Blaðsíða 63
61
að hefja stúdentaskifti milli landanna á næsta sumri. Stúdcntaráðið
sótti um 3000 kr. styrk úr «Dansk-Islandsk Forbundsfond» til þess-
ara skifta. Óvist er enn, hvort fje þetta fæst, og mun pað helst hamla,
að sáttmálasjóðurinn hjer heima hefir enn ekki fengist til að styrkja
stúdentaskiftin. Einn stúdent pýskur hefir komið til vetrardvalar i
stúdentaskiftum, og hefir honum verið fenginn dvalarstaður.
Framkvæmdirnar á stúdentaskiftunum hafa mjög verið erfiðleikum
bundnar. Mest hefir bagað Ijeleysið. Þrátt fyrir ítrekaðar umsóknir
bæði til ríkissjóðs og háskólaráðs, hefir enn enginn styrkur fengist
til skiftanna, pó að við honum hefði mátt búast til svo merkra mála.
Undir vorið var kosin nefnd til að veita móttöku hinum erlendu
stúdentum og leiðbeina peim hjer. Annars var málið eingöngu i hönd-
um stjórnar stúdentaráðsins.
Upplýsinffaskrifstof an.
Lúðvík Guðmundsson hafði allflest störf skrifstofunnar með hönd-
um, par til er hann fór utan, seinni hluta vetrar, en pá tók við
Magnús Jochumsson póstmálaritari og heldur hann starfinu enn.
Skrifstofan hefir aflað sjer upplýsingagagna frá öllum helstu háskól-
um og æðri raentastofnunum á Norðurlöndum og víðsvegar um hinn
mentaða heim. Hún hefir gefið upplýsingar og lciðbciningar stúdent-
um og öðrum námsmönnum, sem utan hafa farið, sótt um skóla fyrir
pá, styrki o. s. frv. Hún hefireinnig gefið upplýsingar og leiðbeiningar
ýmsar, um nám hjer innanlands.
Lesstofan.
Lesstofan hefir verið með saraa hætti og undanfarið ár. Fyrri hluta
dags notuð til kenslu, en síðari hluta opin öllum háskólastúdentum.
Mikið at blöðum, tímaritum og fræðiritum hafa legið par til afnota,
og bókasafn nokkurt. Stofan hefir verið lítið notuð, einkum síðan
«Mensa» kom, enda hefir par einnig verið blaðakostur.
Láinssjóðuriun.
Samið var frumvarp til Iaga fyrir lánssjóð stúdenta. Pað var sent
stjórnarráði og háskólaráði og sampykt af báðum. Fulltrúaráð var
kosið fyrir sjóðinn. Stjórnarráðið kaus Vigfús Einarsson cand. jur,,
háskólaráðið próf. Ólaf Lárusson og stúdentaráöið Björn Arnason
stud. jur. — Enn mun ekki komið mikið fje í sjóðinn, enda ekki ætl-
ast til að hann geti tekið til starfa strax, en unnið að pví að afla
honum fjár.