Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Page 53
51
ar, svo og að flytja inn i landið og selja þar útlend vísindarit cða
kenslubækur mcð köflum úr almanökum, enda megi þeir teljast, að
dómi ráðherra, að eins óverulegur hluti ritsins eða bókarinnar.
3. gr.
Háskólanum er skylt að sjá um, að íslenskt almanak sje ár hvert
gefið út í nægilega mörgum eintökum og svo snemma, að almenning-
ur eigi þess kost, að afla sjer þess fyrtr ár það, er i hönd fer, hjá út-
sölumönnum, sem víðast um landið, í hverri sýslu eða kaupstað, fyrir
hver áramót.
4. gr.
í almanakið skal taka: dagatal eftir mánaðardögum og vikudögum
bæíi eftir gregoriönsku timatali og íslensku, hátíðir kirkjuársins og
helstu kafla þess, sumarkomu og veturnætur, helstu merkisdaga bú-
skaparársins svo sem byrjun og lok vertíðar og fardaga, þjóðminn-
ingardaga hina helstu. Par skal skýrt frá tunglkomum, kvartilaskiftum
tungls og fyllingu, hvenær tungl er i hádegisstað í Reykjavík dag
hvern, hvenær tungl er næst jörðu eða fjarst og hvenær hæst á lofti
eða lægst, tnnglmyrkvum, hvenær sól rís og gengur til viðar í Reykja-
vík einu sinni á viku hverri, hvenær jörð er næst sólu eða fjarst,
jafndægrum, sólstöðum og sólhvörfum og sólmyrkvum. Par skal skýrt
frá íslenskum meðaltíma, er sól er í hádegisstað í Reykjavík dag
hvern, gyllinitali og sunnudagsbókstaf ársins, gefið yfirlit yfir gang
reikistjarna á árinu, þar skal vera tafla um flóð og fjöru í Reykjavík,
og leiðbeiningar um það, hvernig flnna megi af þeirri töflu flóð og
fjöru í helstu kauptúnum landsins, og skýringar á lengdar- og breidd-
arleiðrjettingum á gangi sólar og tungls á íslandi utan Reykjavikur.
5. gr.
Háskólaráðið sjer um útreikning almanaksins, útgáfu þess og sölu.
Er þvt heimilt að fela einstökum mönnum, stofnunum eða íjelögum
framkvæmd þessara atriða eins eða fleiri, og að greiða endurgjald
fyrir þau störf.
Háskólaráðið getur, að fengnu samþykki ráðuneytisins i hvert sinn,
selt einstökum mönnum, stofnunum eða fjelögum einkarjett háskólans
til útgáfu íslensks almanaks, um ákveðið árabil, enda sje næg trygging
fyrir því, aö útgáfan verði vel af hendi leyst, útsala almanaksins hag-
anleg fyrir almenning, og hlíti útgefandi sömu reglum um verð al-
manaksins sem háskólinn. Endurgjaldið fyrir útgáfurjettinn renni í
almanakssjóð.