Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Page 58
56
frv. að reglugerð og sent háskólaráðinu. En pað vildi ekki samþ. eina
grein (8. gr.) óbreytta, og var henni svo breytt á fundi 2. des. 1920,
svo báðir urðu ánægðir. (Sbr. um þetta gerðabækur stúdentafjel. og
stúdentaráðsins 1920, bls. 5—9 og Indr. Einarsson: Stúdentafjelagið 50
ára, bls. 62).
Af málum þeim, sem stúdentaráðið hefir haft afskifti af á þessu
tímabili, skal hjer getið þessara (sbr. að öðru leyti skýrslu þáv. form.
á alm. stúdentafundi 11. nóv. 1921, gerðab. bls. 27—33). Á fundi 17.
des. 1920 vakti St. Jóh. Stefánsson máls á því (gb. 13), að stofnað yrði
kaupfjelag meðal stúdenta, þar sem þeir gætu á þann hátt sparað sjer
mikið fje fyrir ýmsan varning. Var kosin nefnd til þess að athuga
þetta og leitaði hún tilboða hjá ýmsum heildsölum og fjekk þau, og
stóð svo málið við lok þessa timabils.
A sama fundi var einnig um það rætt, að koma á lánsstofnun fyrir
stúdenta, svo þeir, sem þess þyrftu, gætu með aðgengilegum kjörum
fengið lán til þess að stunda nám sitt. Hafði sams konar mál áður
verið vakið í stúdentafjel. Rvíkur, en fullnaðarniðurstaða ekki fengin
þar. Hafði manni einum verið falið að kynna sjer slikar stofnanir er-
lendis, af meirihluta nefndar þeirrar, sem þá fór með málið (dr. Ág.
H. Bjarnason, Ásg. Ásgeirsson cand. theol. og V. Þ. G.), en sá maður
ekkert látið frá sjer heyra. Fól svo form. stúdentaráðsins Lúðvíki Guð- •
mundssyni að grenslast eftir þessu, og gerði hann það, og eftir það
var nefnd kosin í stúdentaráðinu til þess að reyna að koma málinu
áleiðis. Var síðan altaf og mikið um málið rætt, m. a. á fundi 22. jan.
1921 (gb. 14—15) og á alm. stúdentafundi s. d. Vildu sumir gefa upp all-
an rikisstyrk, en fá upphæð hans allri breytt i lán, með góðum kjör-
um, og skyldu lánin verða sem næst nægileg til þess að stúdentinn
gæti fyrir þau stundað nám sitt, en endurgreiðsla átti að fara fram,
þegar hann hefði fengið fasta stöðu. En aðrir mæltu fast á móti þessu
og varð ekkert samkomulag á þessu tímabili.
Á fundi 17. des. 1920, bar Lúðv. Guðmundsson fram till. um stofn-
un sjúkrasamlags stúdenta og var það mál heldur ekki útkljáð á
þessu ári.
Ennfremur skal þess getið, að mörgum stúdentum var útvégað hús-
næði víðsvegar um bæinn. Pá má einnig geta þess, að i lesstofu stúd-
enta í háskólanum lágu frammi á þessu tfmabili 37 blöð og tímarit,
erlend og innlend, þegar flest voru, keypt, gefin eða ljeð stofunni.
Stofan var þó ekki mikið notuð að þessu leyti, en allmikið til ann-
ars, námslestrar, og seinna einnig tekin sem kenslustofa jafnframt.
Voru þá blöð jafnframt oftast nær lögð fram á Mensa academica. Há-
skólaráðið hafði veitt stúdentafjelaginu styrk til lesstofunnar. — Enn-