Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Síða 16
16
Háskólaráðið sér sér ekki fært að veita umræddar 12000 kr.
af tekjum Sáttmálasjóðs. Samþykkt á tillögu fjárveitinganefnd-
ar mundi því leiða lil þess eins, að fella niður styrk stúdent-
anna, en eins og háskólaráðið margsinnis hefir hent á á undan-
förnum árum, þá hefir sú fjárveitíng hvergi nærri verið næg'i-
lega há og farið hlutfallslega lækkandi vegna vaxandi tölu
stúdenta, lengingar námstíma þeirra og hækkandi námskostn-
aðar. Háskólaráð hefir margsinnis skorað á bæði stjórn og
þing að liækka stvrktarfé þetta, og þá áskorun vill það enn
einu sinni endurnýja. t lilefni af ummælum þeim, er fjár-
veitinganefnd styður tillögu sína með, vill háskólaráðið taka
það fram, að þegar ákvörðun var tekin um það í fyrstu, hversu
tekjum Sáttmálasjóðs skyldi varið, varð það að samkomulagi
með háskólaráði og' landsstjórn, að styrkur til stúdenta við
háskólann skyldi greiddur úr ríkissjóði, en að Sáttmálasjóður
skyldi veita fé til framháldsnáms kandídata erlendis. Þessi
verkaskipting hefir haldizt síðan, og er nú árlega fullum
þriðjungi af tekjum Sáttmálasjóðs, þeim er til úthlutunar
koma, varið til framlialdsnáms kandídata erlendis. Háskóla-
ráðið lítur svo á, að þær utanfarir séu mjög gagnlegar fyrir
kandídatana, enda myndi væntanlega mega fá umsögn allra
þeirra, sem þcssa stvrks hafa notið, þar á meðal ])riggja nú-
verandi alþingismanna, um það, hversu mikilsvirði það hafi
vcrið þeim að eiga þess framhaldsnáms kost. Háskólaráð vill
því eigi fella þessar fjárveilingar niður, og telur það, að með
þeim sé fyllilega fullnægt því hlulverki sjóðsins, að styrkja
námsmenn. Ef sjóðurinn auk þess ætli að laka á sig að greiða
náms og húsaleigustyrk stúdenta, sem nám stunda við há-
skólann, myndi hann eigi geta rækt þau hlutverk önnur, sem
honum eru setl í skipulagsskrá hans, og eru sum þeirra auk
þess óhjákvæmileg nauðsyn, svo sem t. d. hókakaup Iiáskól-
ans, sem sífelll fara vaxandi og' nú þegar er eigi hægt að veita
svo mikið fé til sem nauðsynlegt væri. Af þessum ástæðum
getur háskólaráðið ekki tekið á sig að veila náms- eða húsa-
leigustvrk úr sjóðnum.