Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Page 41

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Page 41
41 islenzkum fræðum til eflingar og söfnun þess hafa verið talin fræðimannlegt afrek. En nú hefir eigandinn sýnt Háskóla íslands þá góðvild og rausn, að gefa honum allt þetta hóka- safnt með gjafahréfi dagsettu 10. júli 1935. Hefir hann enn- fremur látið svo um mælt, að hann muni halda áfram að auka það og hæta, meðan lians nýtur við. Þetta er ekki fyrsta gjöf iians í þann garð, þvi að á stofndegi liáskólans, 17. júní 1911, gaf hann honum sjóð, er varið skal til heiðurslauna fyrir framúrskarandi ritverk í visindum, og sýndi með þvi þá þegar hug sinn til hinnar nýju stofnunar og trú sína á framtið hennar. En með þessari síðari gjöf hans, sem mun verða því dýrmætari sem lengri tímar líða, er í raun og veru lagður grundvöllur meira og fullkomnara hókasafns fvrir þjóðleg fræði vor en annars eru líkindi til, að Háskóli íslands hefði nokkurn tíma átt lcost á að eignast. Mun háskólinn, með- an liann stendur, njóla handaverka og höfðingsskapar Bene- dikts S. Þórarinssonar, og telur heimspekisdeild sér sæmd að þvi, að veita þessum merka fræðimanni og velgjörða- manni háskólans þá viðurkenningu, sem hér er um að ræða. í tilefni af 25 ára afmæli háskólans hinn 17. júní 1936, fór fram kjör heiðursdoktora eins og hér segir: A fundi 15. júní 1936 samþykkti guðfræðisdeild að kjósa Jón hiskup Helgason doctor theologiae honoris causa með þessum formála: Um meir en 40 ára skeið hefir dr. theol. Jón Helgason hiskup unnið guðfræðileg vísindastörf, bæði sem kennari og forstöðumaður prestaskólans, prófessor við guðfræðisdeild háskólans og biskup landsins. Eru þau störf svo mikil og ágæt og þjóðinni til slíks sóma, hæði utan lands og innan, að guðfræðisdeildin vill sérstaklega minnast þeirra á 25 ára afmæli háskólans og þakka með hæsta lieiðri, sem hún ræð- ur yfir.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.