Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Síða 45
45
Þorkell Þorkelsson veðurstofustjóri er fyrir löngu orðinn
kunnur maður bæði liér á landi og erlendis fyrir vísindarann-
sóknir sínar. Hann hefir samið merkar ritgerðir um ýmsar
greinir náttúrufræðinnar, sem hirzt hafa hæði á íslenzku og
á útlendum málum. Höfuðviðfangsefni hans hafa þó verið
íslenzk rímfræði og rannsókn íslenzkra hvera. Um rimfræð-
ina liefir hann hirt ritgerðir í Aarhöger for nordisk Old-
kyndighed og' i Skírni, þar sem hann liefir flutt og rökstutt
rækilega ýmsar kenningar, er l)regða nýju ljósi vfir islenzkl
tímatal. En höfuðritgerð sína um hverarannsóknirnar liefir
hann hirt í ritum liins konunglega danska vísindafélags.
Beinast þær rannsóknir einkum að liveraloftinu, samhandi
þess við aðra eiginleika hveranna og áhrifum þess á gosin.
Hefir höfundurinn lilolið mikla viðurkenningu fvrir þess-
ar rannsóknir, enda liafa þær vakið hina mestu athygli meðal
vísindamanna. Þcss vegna telur deildin í alla staði maklegt
að sæma þenna mikilsverða vísindamann doktorsnafnbót í
heimspeki.
Læknadeildin samþvkkti á fundi 19. maí 1933 að levfa Arna
Árnasyni héraðslækni að verja fvrir doktorsnafnbót í læknis-
fræði ritgerð um heilaslag og arfgengi, er síðan var þýdd á
þýzku og prentuð með titlinum „Apoplexie und ihre Verer-
hung“. Doktorsprófið fór fram 12. okt. 1935. Andmælendur
ex officio voru prófessorarnir Guðmundur Hannesson og
Niels Dungal. Vörnin var tekin gild og doktorsskjal veitt.
Æfiágrip dr. med. Árna Árnasonar.
Arni Árnason er fæddur 28. des. 1885 í Skildinganeskoti á
Seltjarnarnesi. Foreldrar: Árni Árnason, sjómaður, Arnórs-
sonar, Snorrasonar frá Engey, og Valgerður Pálsdóttir, Ólafs-
sonar frá Blikastöðum. Útskrifaður úr Reykjavíkur lærða
skóla árið 1906, með I. eink. (104 st.). Tók próf í forspjallsvís-
indum við Kaupmannahafnarháskóla vorið 1907 með ágætis-
einkunn. Kandídat frá Háskóla íslands vorið 1912, með I.
eink. (205% st.). Dvaldi í Kaupmannahöfn veturinn 1912—