Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Side 47

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Side 47
47 Júlíusar læknis. Stúdentspróf tók hann 1890 með I. einkunn. Hann lærði síðan læknisfræði i Kaupmannahöfn og' tók þar próf í lienni 1897 með II. hetri einkunn, var sama ár skipaður héraðsl. í Skagafirði og árið eftir læknir við Holdsveikraspít- alann í Laugarnesi. Hann kvæntist 1. okt. 1902 Christophine Mikkeline vfirhjúkrunarkonu, dóttur józks hónda. Arið 1912 var hann sæmdur prófessorsnafnbót. Jafnframt því, sem hann gerðist holdsveikralæknir, var honum falin kennsla í Ivfjafræði, fyrst við læknaskólann og síðan við liáskólann. Báðum þessum störfum gegndi liann til þess að hann sótti um lausn frá emhætti 1934, en stundaði jafnframt lækningar. Iieilsan var þá farin að hila og heyrnin að sljóvgast (arterio- sclerosis, emollitio cerehri). Fluttist liann síðan til Dan- merkur og andaðist þar 21. fehr. 1936 eftir langa vanheilsu. Lífsstarf Sæmundar lieitins var fvrsl og fremst holdsveikra- spítalinn og þar næst kennslan í lyfjafræði. Það var ekki vandalaust að laka við spítalanum fullum af sjúklingum, sem höfðu litla sem enga von um bata og voru margir þunglega þjáðir. En próf. Sæmundur var þessum vanda vaxinn. Hann gegndi spítalastarfinu með stökustu alúð og skyldurækni, var l>æði lipur og fastur fyrir, fylgdist ágætlega með í öllum ný- ungum, sem lutu að meðferð holdsveikra, og tókst furðanlega að hæta sjúklingunum meinsemdir þeirra, svo þeir urðu smám saman sem heilhrigðir menn í samanhurði við það, sem gerð- ist fvrstu árin. Varð hann hæði vinsæll hjá sjúklingum og gat sór góðan orðstír, svo að hann var talinn meðal fremstu holdsveikislækna á sinum tíma. Þar að auki lét hann sér mjög annt um allan fjárhag spítalans og reyndist þar ágæt- ur búmaður. Aðstaða lians við lyfjafræðikennsluna var erfið, því hæði skorti söfn, tæki og' húsakynni til þess að kenna nokkuð verk- lega. Honum lókst þó að koma upp nokkru lyfjasafni, sem var stúdentum til mikillar hjálpar. Hann gerði sér og far um að fylgjast með framförum i þessari grein. Kurteisi hans og skyldurækni gerðu hann og liinn vinsælasta kennara. En hann hugsaði lika um sjúklingana, sem eiga að horga lvfin,

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.