Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Qupperneq 73
raunverulega er. Þar sem Garðstjórn hefir nú yfirtekið allt reiknings-
hahi hefir þetta iitla þýðingu, því eins og áður er sagt munu loforð-
in öll ganga til greiðslu vixilsins. Allar byggingarskuldir, aðrar en
l)ær, sem taldar eru í efnahagsyfirlitinu, eru nú að fullu greiddar.
Nokkrar endurbætur hafa verið gerðar í húsinu, meðal annars á mið-
stöð, og kemur nokkuð af þeim kostnaði á rekstrarreikning næsta árs.
Reykjavik, desember 1936.
Gústaf E. Pálsson.
Reikninga þessa höfum við endurskoðað og borið saman við fylgi-
skjölin að svo miklu leyti sem þau fyrirfinnast og ekkert fundið at-
hugavert. Fylgiskjöl eru fyrir öllum gjöldum, en yfir tekjur er aðeins
færð kassabók garðprófasts.
Reykjavik, 2. febrúar 1937.
Bjarni Benediktsson. Árni M. Jónsson.
Lög um Háskóla Islands.
I. KAFLI
Stjórn háskólans.
1. gr.
í Háskóla íslands eru þessar ó deildir: guðfræðidcild, læknadeild,
lagadeild, heimspekideild og atvinnudeild.
2. gr.
Stjórn háskólans er falin rektor háskólans og háskólaráði.
Háskólaráðið hefir úrskurðarvakl í öllum þeim málurn, er snerta
starfsemi háskólans, samkvæmt reglugerð, er konungur setur. Há-
skólaráðið fer með undirbúning þeirra mála, er leggja á fyrir kon-
ung, löggjafarvald eða stjórnarráð og snerta hálskólann. Það lætur
stjórnarráðinu í té allar þær upplýsingar, sem það þarf á að halda
og snerta háskólann sérstaklega.
3. gr.
Rektor er kosinn af prófessorum og dósentum háskólans til 3 ára
í senn, en prófessorar einir eru kjörgengir.
Sá prófessor er rétt kjörinn rektor, sem fengið hefir meiri hluta
greiddra atkvæða, enda hafi tveir þriðju hlutar kosningarbærra
kennara átt þátt i atkvæðagreiðslunni.
Rektorskosning fer fram 14. dag maímánaðar eða næsta virkan dag.