Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Side 76

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Side 76
76 14. gr. Heimilt skal hverjum kennara háskólans að halda fyrirlestra í há- skólanum um sjólfvalin efni, að svo miklu leyti sem það kemur ekki í bága við skyldukennslu, en tilkynna skal hann rektor háskólans það áður. 15. gr. Hver sá, kona eða karl, sem lokið hefir stúdentsprófi við hinn al- menna menntaskóla eða annan lærðan skóla honum gjafngildan, á rétt á að verða skrásettur háskólaborgari, gegn því að greiða skrásetn- ingargjald til háskólans, enda sé mannorð hans óflekkað. Sama rétt getur háskólaráðið veitt útlendingum, er fullnægja of- angreindum skilyrðum. Hver sá, sem æskir skrásetningar, skal tilkynna það ritara háskól- ans og hverja námsgrein hann ætlar að stunda, og tekur ritari við skrásetningargjaldinu. Skipti stúdent um námsgrein, skal hann til- kynna það ritara, og getur hann þess í nemendaskránni. Skrásetningargjaldið er 15 krónur. 16. gr. Skrásettur stúdent fær háskólaborgarabréf hjá rektor. 17. gr. Allir skrásettir stúdentar eru skyldir að gæta velsæmis bæði i há- skólanum og utan hans. Verði skrásettur stúdent sekur um einhver afbrot gegn settum reglum háskólans, getur háskólaráðið gert honum hegningu. En hegningin er annaðhvort áminning eða styrkmissir, brottrekstur um lengri eða skemmri tíma eða fyrir fullt og allt. 18. gr. Nú verður skrásettur stúdent sekur að lagadómi um verk, sem sví- virðilegt er að almenningsáliti, og er hann þá rækur. Brottrekstur skal þegar í stað tilkynna stjórnarráðinu. 19. gr. Hver valdsmaður, sem stefnt hefii’ háskólastúdent fyrir glæp, skal tilkynna það þegar í stað rektor háskólans. Svo er og þegar hafin cr réttarrannsókn gegn stúdent fyrir glæp. 20. gr. Afskiptum háskólans af skrásettum stúdentum er þá fyrst lokið, er stúdent hefir hætt námi að fullu og öllu og tilkynnt ritara háskólans það, eða hefir ekki sótt háskólann i 4 kennlsumissiri samfleytt.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.