Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Síða 80
80
Embættisprófinu skal skipt í tvennt, fyrra hluta og síSara hluta.
Prófgreinar í fyrra hluta embættisprófs eru þessar:
I. Almenn lögfræði og persónuréttur.
II. Sifja- og erfðaréttur.
III. Stjórnlagafræði.
IV. Þjóðaréttur.
V. Réttarsaga.
VI. Þjóðhagsfræði.
Prófið er bæði munnlegt og skriflegt í II. og III. prófgrein, en að-
eins munnlegt i hinum.
Prófgreinar í síðara hluta embættisprófs eru þessar:
I. Kröfu- og hlutaréttur.
II. Sjó- og félagaréttur.
III. Refsiréttur.
IV. Stjórnarfarsréttur.
V. Réttarfar.
VI. Raunhæft verkefni, þar sem til úrlausnar koma atriði úr sem
flestum fyrrnefiulum prófgreinum, bæði í fyrra og síðara hluta
embættisprófs, nema V. og VI. grein fyrra hluta.
Prófið er bæði munnlegt og skriflegt í I., III. og V. prófgrein, en
aðeins munnlegt í II. og IV. prófgrein og skriflegt í VI. prófgrein.
Kandidatarnir mega hafa allt að 6 klukkustundum til skriflegrar
úrlausnar í prófgrein hverri, bæði í fyrra og síðara hluta embættis-
prófs.
Áður en kandídatinn segir sig til síðara hluta prófsins skal hann
Ieggja fram skilriki fyrir því, að hann hafi samvizkusamlega tekið
þátt í æfingum í bókhaldi, vélritun og lögfræðilegri skjalaritun. Enn-
fremur skal hann leggja fram skilriki fyrir þvi, að hann hafi unnið
á lögfræðiskrifstofu undir handleiðslu lögfræðings með embættis-
prófi um a. m. k. tveggja mánaða skeið.
Staðfest af konungi 28. okt. 1935.
Gjafabréf dr. Benedikts S. Þórarinssonar.
Benedikt Sigurðr Þórarinsson
kaupmaðr á Laugaveg 7 i
Reykjavikurkaupstað
GJÖRI KUNNUGT: að ég með bréfi þessu gef og afsala Háskóla
íslands allt bókasafn mitt frá einblöðungi til hinnar þykkustu bók-
ar, bundið sem óbundið, að undanteknum Corpus Codicum Islandi-
corum Medii Aevi, vols. I—VII, Levin & Munksgaard, Copenhagen