Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1936, Síða 81
81
1930—1934. Safninu fylgja tvö ljósmynduð handrit, annað af Þiðriks
sögu af Bern, en hitt af Frisbók (Codex Frisianus). Ein skrifuð
kvæðabók, skrifuð 1816. Svo og fylgja bókasafninu göniul og ný
landabréf, blaða-úrklippingar uppsettir og óuppsettir og póstkortasafn.
Bókasafnið er eign Háskóla íslands frá dagsetningu bréfs þessa, og
getr bann tekið það í sínar vörzlur nær hann vill
Allt safnið á að vera merkt bókmiða (Ex-libris) mínum, og fylgja
þvi myndamót tvö, lítið og stórt. Ennfremur fylgja spjaldskrár.
Gjöf þessari fylgja þau skilyrði, að safninu sé haldið út af fyrir
sig, og að háskólinn láti safnið ekki af hendi á nokkurn hátt, né
neitt úr því, til annara safna eða einstaklinga, hvorki í bókaskipt-
um, gefins eða selt. Eigi séu heldr bækr safnsins lánaðar úr því út
úr háskólanum, og helzt verði safnið eigi til afnota öðrum en pró-
fessórum, dósentum og kandidötum, er nota það innan veggja bóka-
safns háskólans. Ætlazt er til, að bókasafnið verði sérstaklega vel
hirt, og fágætustu hlutir þess verði geymdir i vel læstum skápum.
Endist mér ekki lif til að afhenda Háskóla íslands bókasafnið og
það, er því fylgir og fylgja ber, bið ég son minn Eirík Benedikz
að gera það fyrir mína hönd.
Gjafabréf þetta er gert í tveim samhljóða frumritum.
Til staðfestingar bréfi þessu er mín eiginhandar undirskrift og
innsigli.
Reykjavík, 10. dag júlimánaðar 1935.
Ben. S. Þórarinsson
Vitundarvottar: L. S.
Bogi Ólafsson.
Sigríður Björnsdóttir.
Til Háskóla íslands, Reykjavík.
G.jafabréf Reykjavíkurbæjar.
Borgarstjórinn i Reykjavík.
Reykjavík, 21. febr. 1936.
Á fundi bæjarstjórnar Reykjavikur í gær var samþykkt, að Há-
skóla íslands verði fengin ióð undir fyrirhugaðar byggingar sinar
sunnan Hringbrautar, á milli Suðurgötu og fyrirhugaðrar framleng-
ingar af Tjarnargötu, suður að vegi gegnt Loftskeytastöðinni. Land
þetta fái háskólinn án endurgjalds, þannig að úr bæjarsjóði verði
greitt það, sem erfðafestuhöfum ber samkv. samningum, og jafnframt
heimiiar bæjarstjórn bæjarráði að taka erfðafestulöndin eftir því
sem þörf krefur.