Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1943, Qupperneq 6
4
gangsmenn liáskólans, áliugi hans, einbeitni og stórhugur
ódrepandi. Ég vil fvrir haökólans hönd þakka lionum alll
hans starf, og við vonumst fastlega, að hann eigi eftir að
grípa stjórnvölinn í þessari stofnun.
Ég, sein nú hef tekið við rektorsstöðu, cr roskinn maður,
hægfara, óvanur opinherri framkomu. Undanfarin ár liafa
verið ótrúleg framfara- og hreytingaár hér i skólanum, í
margt verið ráðizt, sem orkar tvímælis og deilt liefur verið
um harðlega; ég nefui sem dæmi viðskiptadeildina, verk-
fræðideild, lóðakaup íiáskólans, stofnun kvikmyndaliúss o. fl.
Margt af þessu er aðeins mjór vísir, nýgræðingur á veikum
rótum. Yið viljum frekar reyna að hlúa að þessum nýgræð-
ingi, fá liann til að stækka og þroslcast en byrja á nýrri
gróðursetningu.
Þó er það ein af nýjungum fyrrverandi rektors og há-
skólaráðs, sem ég vildi leggja allt kapp á, að nái fram að
ganga, en það er bvgging fullkomins leikfimishúss fyrir
Háskóla fslands, og liggja til þess mörg rök.
1. Nú er nám í leikfimi og sundi orðið skyldunámsgrein
fyrir alla yngri stúdenta, og skal því lokið með prófi. Þetta
hefur geysilega þýðingu fyrir líkamsþrótt, lieilsu og atgervi
nemendanna. Óviðkunnanlegt er og mjög erfitt að l'á leigt
leikfimispláss nú.
2. Það er mikill skortur slíkra hygginga hér i höfuðstaðn-
um, og mundu því mörg leikfimis- og íþróttafélög geta fengið
æfingapláss í húsinu.
3. Það er skömm fyrir Revkjavík, að einasta nýtízku leik-
fimishúsið hér í hænum skuli vera einkaeign.
Mér þykir þetta svo mikið menningarmál fvrir hæ og riki,
að báðum þessum aðilum heri skylda til að hlaupa undir
hagga við byggingu þessa.
Húsameistari ríkisins hefur nú i ár fengið lillögur um
kröfur þær, sem gera þarf til þessa húss, og vonast ég til
þess, að hann sé hvrjaður á uppdráttum að þvi.
Ég mun þar næst minnast á aðalviðhurði á síðasta starfs-
ári háskólans.