Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1943, Blaðsíða 9
7
Munu kennarar i viðskiptafræðum annast kennsluna.
Ivennslugjaldi er stillt í hóf, sem auðið er.
Guðfræðideild kjöri séra Bjarna Jónsson, dómkirkjuprest
og vígslubiskup, heiðiirsdoktor í guðfræði 21. okt. 1941. —
Hinn 10. jan. 1942 varði Gísli Fr. Petersen læknir ritgerð
sina, Röntgenologische Studien iil)er Arteriosclerosis, til
doktorsprófs. Vörnin var tekin gild. — 7. marz 1942 varði
cand. mag. Jón Jóhannesson ritgerð sína, Gerðir Landnáma-
hókar, fvrir doktorstitli i heimspeki, og var vörnin tekin gild.
Þá skal ég minnast á gjafir, sem háskólanum hafa horizt
siðastl. ár.
1. Gjöf Rockefeller Foundation í New York, að upphæð
15000 dollarar, sem jafngildir um 100 þús. krónum í islenzkri
mynt. Skal þessari upphæð varið til kaupa á kennslu- og
vísindaáhöldum í lyfjafræði, lífeðlisfræði og líffærafræði.
Eg leyfi mér að þakka þessa höfðingjegu gjöf; hún
gerir það að verkum, að vísindastarfsemi getur eftirleiðis
farið fram í þessum greinum læknisfræðinnar, og ætti að
koma fótum Undir aukna verklega kennslu í greinunum.
2. Framfarasjóður stúdenta. Guðmundur prófessor Hannes-
son afhenti sjóð þennan fyrir hönd stofnenda sjóðsins, en
hann var stofnaður árið 1887 af stúdentum þeim, sem þá
luku námi i lærða skólanum. Jafnframt afhenti hann nýja
skipulagsskrá fyrir sjóðinn, sem hlaut staðfesting rikisstjóra
8. apríl þ. á. Sjóðurinn er kr. 5166.60.
3. Minningarsjóður sýslumannshjóna Eggerts og Ingibjargar
Briem, að upphæð kr. 2676.88, var afhentur háskólanum af
séra Yilhjálmi Briem 10. apríl 1942. Stofnendur sjóðsins
eru systkinin Elín Briem Jónsson, Jóhanna Briem Eggerts-
dóttir og séra Vilhjálmur Briem. Hluta af vöxtum sjóðsins
skal verja til þess að styrkja námsmenn í landbúnaðarvís-
indum, þegar deild í þeim fræðum verður stofnuð við há-
skólann.
4. Minningarsjóður Páls Bjarnasonar skólastjóra í Vest-
mannaeyjum var afhentur háskólanum á síðasta ári, kr.