Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1943, Page 7
5
19. niarz s. 1. dó dr. theol Jón Helgason biskup. Árið 1894
var honum veitt 1. kennarastaða við þrestaskólann, skipaður
forstöðumaður lians 1908, prófessor í guðfræði við Háskóla
Islands hinn 17. júní 1911 til ársloka 1916. Biskup var hann
frá þeim tíma til ársloka 1938, í 22 ár. Dr. Jón Helgason var
ágætur, áhugasamur kennari, vel lærður i alls kvns guðfræði.
Hann gaf út fvrirlestra sína um kristilega trúfræði, Almenna
kristnisögu í 4 hindum og Kirkjusögu Islands. Á seinni árum
snerist hugur lians aðallega að persónusögu, einkum guð-
fræðínga, og rak hver ævisagan aðra. Má hiklaust telja hann
einn mikilvirkasta ritliöfund Islands á þessari öld. Hann
var einnig mjög fróður í sögu Reyltjavikur, og síðustu ár
ævinnar samdi hann 2 stór rit um þessi efni. Guðfræðisdeild
háskólans sæmdi hann doktorstitli í guðfræði árið 1936, en
Kaupmannahafnarháskóli sæmdi hann sama Iieiðri árið
1917. Ég vil biðja menn að standa upp til heiðurs minningu
þessa höfuðklerks.
Síðasta ár Iiafa deildir háskólans og háskólaráð Iiaft í
smíðum nýja reglugerð. Hinn 30. júní s. 1. staðfesti ríkisstjórn
reglugerð þessa. Eru í þessari reglugerð teknar upp allar
þær hreytingar, sem gerðar hafa verið á reglugerð skólans
frá árinu 1912, og ýmis nýmæli tekin upp. Má þar nefna
reglur um embættaveitihgar við liáskólann, ákvæði um aukna
kennslu: i viðskiptafræðum, verkfræði, til baccalaureorum
artium prófs o. fl. Ég vil skora á alla stúdenta háskólans
að kynna sér vel þessa reglugerð, sérstaklega vil ég benda
stúdentum i læknadeild á ýmsar minni háttar brevtingar um
námstíma, einkunnir við próf o. fl., sem gilda einungis fyrir
læknadeildina.
Samkvæmt ósk kennslumálaráðuneytisins var útbúið hús-
næði fyrir gagnfræðadeild menntaskólans i norðurhluta
kjallara háskólans, og starfaði því menntaskólinn að öllu
leyti i háskólahyggingunni síðasta skólaár. Nú í haust fær
menntaskólinn aftur hið gámla skólahús og er alveg fluttur
úr háskólanum.
Vegna almennra húsnæðisvandræða í Reykjavík haustið