Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Side 6

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Side 6
4 dr. theol. Magnúsar Jónssonar, sem andaðist 2. apríl síðastlið- inn. Prófessor Magnús kom að háskólanum sem kennari í guð- fræði haustið 1917 og gegndi kennarastarfi sem dósent og pró- fessor í rúm 30 ár, til 1947. Hann var háskólarektor árið 1930 —31. Magnús Jónsson var sem kunnugt er mikilhæfur kennari, maður listfengur og fjölhæfur flestum mönnum framar, enda gegndi hann margvislegum störfum um æfina utan kennara- embættisins, ritstjóri, þingmaður um fjölda ára, ráðherra um hríð. Meðan hann starfaði við háskólann lét hann mál hans til sín taka og átti góðan hlut að umbótum, sem í hans tíð urðu á högum skólans. Þá vil ég minnast þess hörmulega atburðar, er fjórir af stúd- entum háskólans fórust í flugslysi á öxnadalsheiði þ- 29. marz. Þessa atburðar og þeirra manna, er fórust með svo sviplegum hætti, var minnzt með athöfn í kapellu háskólans laugardaginn fyrir páska, hinn 5. apríl, við almenna hluttekningu stúdenta og kennara. Á háskólaárinu 1957—58 hafa litlar breytingar orðið á starfs- mannaliði háskólans. Að því leyti var hið fyrra ár, 1956—57, miklu viðburðaríkara, því að með nýju háskólalögunum, sem tóku gildi 29- maí 1957, voru stofnuð þrjú ný prófessorsembætti og alls bættust við á því ári fjórir nýir prófessorar og einn aukakennari, dósent. Helztu breytingar í hópi kennara nú eru þær, að sendikenn- ari, Mr. Lokensgard frá Bandaríkjunum, hvarf héðan í vor. Síra Harald Sigmar, sem gegndi kennarastörfum árið sem leið í guðfræðideild fyrir próf. Þóri Þórðarson, starfar nú í vetur sem sendikennari frá Bandaríkjunum, kennir guðfræði i fjar- veru próf. Þóris, eins og í fyrra vetur. Þá kom að háskólanum í haust enskur sendikennari, Mr. Donald Brander, kennir enska tungu og bókmenntir í samvinnu við enskukennarann Heimi Ás- kelsson, M.A. Hér hefir ekki starfað enskur sendikennari síðan 1948. 1 heimspekideild hafa þær breytingar orðið síðan i fyrra- haust, að dr. Sigurður Nordal, sem undanfarið gegndi sendi- herraembætti í Kaupmannahöfn, tók aftur við embætti sínu, dr. Guðni Jónsson var í árslok 1957 skipaður prófessor í sögu,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.