Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Qupperneq 11
9
hagræði. Enn vantar samt nokkuð af nauðsynlegum tækjum,
0g verður ekki hjá því komizt að verja til þeirra nokkru fé.
Þá er komið allvel á veg að útbúa nýtt húsnæði fyrir tann-
læknaskólann í hinni nýju landspítalabyggingu. Eru jafnvel
vonir til, að skólinn geti flutt í þetta nýja húsnæði upp úr ára-
mótum, en við þessa breytingu mun verða unnt að auka afköst
skólans nær um helming, og er það mikilsvert, því hingað til
hefir hvergi nærri unnt verið að sinna öllum umsóknum um
nám í skólanum. Jafnframt verður kennslan bætt og aukin sam-
kvæmt hinni nýju háskólareglugerð, svo að vænta má, að tann-
læknakennslan þurfi í engu að vera síðri en gerist í tannlækna-
skólum á Norðurlöndum. Framkvæmd þessi mun kosta all-
mikið fé, en hún mun líka bæta úr mjög brýnni þörf. Þá er haf-
in smíði á nýrri hæð við íþróttahús háskólans, og verður þar
komið upp kennslustofum fyrir efnafræði og eðlisfræði, ásamt
húsrými til tilrauna og rannsókna í þessum greinum. Var þetta
orðin brýn nauðsyn, margra hluta vegna. Þá er hafin vinna við
innréttingu á húseign háskólans við Hlemmtorg, er keypt var í
fyrra sumar og ætluð til afnota fyrir náttúrugripasafnið, fyrst
um sinn, þar til reist verður sérstakt hús yfir safnið. Þeirri
framkvæmd verður væntanlega lokið fyrir næsta haust. Loks
er hafinn undirbúningur að byggingu kvikmyndahúss háskólans
við Hagatorg. Hér mun á næstu árum rísa veglegasta sam-
komuhús bæjarins. Húsið verður eign Sáttmálasjóðs. Svo er til
ætlazt, að háskólinn sjálfur eignist nokkra hlutdeild í þessu
húsi til sinna eigin nota. Þegar háskólinn flutti í sín nýju húsa-
kynni haustið 1940 var það sjálfsagt ætlun flestra, að þar með
væri vel séð fyrir húsnæðisþörfum skólans um langa framtið.
Nú, eftir 18 ár, og reyndar miklu fyrr, er allt önnur raun á
þessu orðin. Þrengsli eru nú orðin tilfinnanleg, en einkum vant-
ar skólann samkomusal við sitt hæfi. Við erum nú stödd í rúm-
beztu salarkynnum skólans og höldum hátíð, sem samkvæmt
tilgangi sínum ætti að ná til allra nemenda háskólans, vina
hans og velunnara, kennara og allra sem skólanum eru tengd-
ir með nokkrum hætti. Þó rúmast hér trauðlega öllu fleiri en
kennarar skólans, nýju stúdentarnir og fámennur hópur boðs-
2