Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Page 60
58
II. Fjármunaréttur II: Lýsið reglunum um sjálfsvörzluveð í
lausafé.
III. Sifja-, erfða- og persónuréttur:
1. Gerið í megindráttum grein fyrir lagareglum og laga-
sjónarmiðum, sem á reynir við samninga milli hjóna.
2. Raunhceft úrlausnarefni, sem ekki er skráð hér.
IV. Stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttur: Hverju skiptir það
um gildi stjórnarathafnar, að ólögmætri aðferð hefir ver-
ið beitt við undirbúning hennar og gerð?
V. Raunhæft verkefni, sem ekki er skráð hér.
Ennfremur luku 4 stúdentar prófi í álmennri lögfrœði í lok
fyrra misseris og 9 í lok síðara misseris, 8 prófi í hagfrœði í lok
fyrra misseris og 16 í lok síðara misseris og 22 í álmennri bók-
fœrslu í lok síðara misseris.
Prófdómandi við embættispróf í lögfræði var Sveinbjörn
Jónsson hæstaréttarlögmaður.
II. Kandídatspróf í viðskiptafræðum.
1 lok fyrra misseris luku 4 kandídatar prófi í viðskipta-
fræðum:
Friðrik D. Stefánsson... Aðaleinkunn II: 194% stig (9,74)
Geir Magnússon ......... — 1:249% — (12,49)
Rúnar Sigmundsson....... — I: 255% — (12,78)
(Jnnar Stefánsson ...... — II: 197% — (9,89)
Skriflega prófið fór fram 9. og 12. janúar.
Verkefni voru þessi:
I. 1 rekstrarhagfrœði:
1. Hversvegna hljóta allt aðrar reglur að gilda um skipt-
ingu ágóða í sameignarfélögum en í hlutafélögum, og
hverjar teljið þér, að þessar reglur eigi að vera?