Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Blaðsíða 62
60
Heimspekideildin.
I. Kandídatspróf í íslenzkum fræðum.
Síðari hluti.
1 lok fyrra misseris luku 2 kandidatar síðara hluta kandídats-
prófs í íslenzkum fræðum:
Hannes Pétursson.......... Aðaleinkunn I: 11.02
Solveig Kolbeinsdóttir .... — I: 10.69
Skriflega prófið fór fram 9., 12. og 16. janúar, en hið munn-
lega 23. janúar.
Verkefni í skriflega prófinu voru þessi:
I. 1 málfrœði:
Sérhljóð í áherzlulausum atkvæðum (viðskeytum og end-
ingum) í íslenzku og uppruni þeirra, einkum í samanburði
við gotnesku. {Hannes Pétursson).
1. Gerið stuttlega grein fyrir g-k-hljóðvarpi.
2. Berið eftirfarandi íslenzkar orðmyndir saman við sam-
svarandi orðmyndir í gotnesku og rekið skyldleika þeirra
og þær breytingar, sem orðið hafa: Ijá (nafnháttur),
tveggja, þriggja (eignarfall), tönn, jörð.
3. Persónuendingar í framsöguhætti þátíðar veikra sagna
í islenzku og gotnesku og söguleg þróun þeirra- (Solveig
Kolbeinsdóttir).
II. I bókmenntasögu:
1. Smáverkefni, 10 talsins.
2. Bólu-Hjálmar.
III. I sögu: Islenzka kirkjan í upphafi 16. aldar og Ögmundur
Pálsson.
Verkefni í heimaritgerð í bókmenntasögu: Nokkur söguljóð
eftir Stephan G. Stephansson: Sigurður trölli, Illugadrápa, Jón
hrak, Grímur frá Hrafnistu (Hannes Pétursson).
Verkefni í heimaritgerð í málfrœði: Fleirkynja nafnorð í ís-
lenzku, söm að formi í nefnifalli (Solveig Kolbeinsdóttir).