Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Síða 95
93
Önnur tbl. komu út í febrúar, marz, apríl og október, ýmist 8, 12
eða 16 síður, og birtust í þeim greinar háskólastúdenta um margvís-
leg efni, auk frétta af félagslífi stúdenta o. fl. Það hefir einkum
reynzt vera tvennt, sem vinna þarf bug á í sambandi við útgáfu blaðs-
ins. Stúdentar hafa verið furðu tregir að drepa niður penna til skrifta
í það og auglýsendur að sama skapi lítt fúsir til að auglýsa í blaðinu.
Þetta eru þær hindranir, sem ritnefndarmenn hafa þurft að ryðja
úr vegi, til þess að koma blaðinu út. Og það tókst fráfarandi ritnefnd
svo oft, sem raun ber vitni. Þegar undan er skilið hátíðablaðið, sem
getið var í upphafi, var ritnefnd skipuð þessum mönnum: Styrmir
Gunnarsson, stud. jur., ritstjóri, Þór Magnússon, stud. mag., og Har-
aldur Henrysson, stud. jur.
Vettvangur stúdentaráðs.
Til þess að treysta böndin milli SHÍ og stúdenta, ákvað ráðið að
áliðnu starfsári að gefa „Vettvang stúdentaráðs" út í breyttri mynd,
fjölritaðan, sem eins konar fréttablað ráðsins. Var strax hafinn und-
irbúningur að útgáfunni og hefir frumburðurinn nú þegar séð dags-
ins ljós.
Kvöldvökurnar á Gamla Garði.
Stúdentaráð gerði á starfsárinu nokkrar ráðstafanir til þess að
efla félagslíf háskólastúdenta. Gekkst ráðið m. a. fyrir nokkrum kvöld-
vökum á Gamla Garði. Með byrjun háskólaárs 1959—60 var þessari
starfsemi haldið áfram, og kom Tómas skáld Guðmundsson á fyrstu
kvöldvökuna og las upp úr ljóðum sínum, en á annarri sagði Bragi
Kristjónsson, stud. jur., frá Moskvuför.
Húsnæði.
Stúdentaráð átti á starfsárinu oftsinnis viðræður við rektor og
ítrekaði við hann óskir stúdenta um aukið húsrými í háskólanum
fyrir félagsstarfsemi sína. Var málaleitunum þessum mjög vel tekið
og frá því skýrt, að stúdentar mundu fá til umráða 3 herbergi í suð-
urkjallara skólans, jafnskjótt og unnt yrði að rýma það húsnæði.
Leikfélag stúdenta.
Þann 6. nóv. 1958 kaus stúdentaráð sjö manna nefnd, er ætlað
skyldi að athuga möguleika á stofnun leikfélags innan háskólans. í
nefndina voru kosin: Gunnar O. Sigurðsson, Jóhannes Helgason, Jak-
ob Möller, Helgi Þorsteinsson, Tryggvi Gíslason, Brynja Benedikts-
dóttir og Magnús Sigurðsson.
Árangur af störfum nefndarinnar varð sá, að hálfum mánuði síðar