Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Side 99
97
lesin upp nokkur kvæði. Þau, sem lásu upp, voru Lárus Pálsson, leik-
ari, og stúdentarnir Brynja Benediktsdóttir, Bernharður Guðmunds-
son, Bolli Gústavsson og Tryggvi Gíslason. Þess má geta, að rithöf-
undurinn var sjálfur viðstaddur kynninguna, sem haldin var fyrir
fullu húsi áheyrenda.
2) Kynning íslenzks sagnaskáldskapar síðasta áratugs átti sér stað
sunnudaginn 22. marz 1959, og flutti Helgi Sæmundsson, ritstjóri og
þáverandi formaður menntamálaráðs, erindi um skáldin og nokkur
verk þeirra. Var erindið bundið við þau skáld, sem gefið hafa út
fyrstu bók sína síðustu 10 árin. Síðan var lesið upp úr verkum
nokkurra skáldanna; Guðmundur Steinsson las sjálfur upp úr ný-
útkominni bók sinni „Maríumynd", Þórarinn Guðnason, læknir, las
upp úr bók Indriða G. Þorsteinssonar, „79 af stöðinni", Sverrir Krist-
jánsson, sagnfræðingur, las upp úr bókinni „Sjór og menn“ eftir
Jónas Árnason, og Bernharður Guðmundsson, stud. theol., las smá-
sögu úr „Stofnunin" eftir Geir Kristjánsson.
Báðum var bókmenntakynningunum síðar útvarpað, svo sem venja
hefir verið. Voru nýlega gerðar ráðstafanir til þess, að upptökurnar
verði varðveittar í Háskóla íslands, eftir að þeim hefir verið útvarp-
að. Með þessu móti ætti að fáum árum liðnum að vera komið upp
við skólann allgott safn slíkra kynninga.
Kvöldvökur.
í þeim tilgangi að efla félagslífið í skólanum og gefa bókmennta-
hneigðum stúdentum tækifæri til að auka þekkingu sína á bókmennta-
stefnum og einstökum verkum, var á vetrinum hrundið á fót bók-
menntakvöldvökum, þar sem stúdentar gátu hlýtt á fróðleg erindi og
rætt saman um áhugamál sín á bókmenntasviðinu.
Tvær kvöldvökur með þessu nýja fyrirkomulagi voru haldnar á
starfsárinu og fóru þær báðar fram í setustofu Nýja Garðs.
1) Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, ræddi um „Hina ungu, reiðu
menn“.
2) Sigurður A. Magnússon, bókmenntagagnrýnandi Morgunblaðs-
ins, fjallaði um „Gangrimlahjólið", bók Lofts Guðmundssonar.
Að erindunum loknum fóru fram yfir kaffibollum frjálslegar um-
ræður um þessi efni og bókmenntir almennt. Á kvöldvökurnar komu
um 20 stúdentar. Báru þeir fram við fyrirlesarana ýmsar spurningar
og urðu síðan fjörugar umræður, enda sýndist sitt hverjum og komu
fram ýmsar athyglisverðar skoðanir.
í bókmenntakynningarnefnd áttu á síðastliðnu starfsári sæti þeir
Þór Guðmundsson, stud. oecon., formaður, Gylfi Gröndal, stud. mag.,
og Höskuldur Jónsson, stud. oecon.
13