Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Qupperneq 108
106
Stúdentaráð hélt áfram að vinna að útgáfu handbókar stúdenta.
Benedikt Blöndal, stud. jur., sem byrjað hafði að vinna að útgáfu
bókarinnar, gat ekki haldið því áfram, sakir anna, og tóku þeir Logi
Guðbrandsson og Sigmundur Böðvarsson þá við ritstjórn hennar. Síð-
ar kom Skúli Pálsson í stað Loga, og að lokum hafnaði bókin í hönd-
um Sigmundar eins.
Að undanförnu hafa staðið yfir allmiklar breytingar á kennslu-
skipan í læknadeild, og hefir það tafið útgáfuna, en að öðru leyti
var bókin tilbúin til prentunar, er stúdentaráð lét af störfum, og setn-
ing raunar hafin.
Utanríkismál.
Stefna stúdentaráðs í utanríkismálum var á liðnu starfsári óbreytt
frá því, sem verið hefir. SHÍ er, sem kunnugt er, aðili að alþjóða-
samtökum stúdenta ISC—COSEC, og hefir samstarf við þau 66 lands-
sambönd stúdenta, sem til þeirra samtaka teljast. Hafa þau með sér
allnáið og víðtækt samstarf í öllum þeim efnum, er snerta hagsmuna-
og félagsmál stúdenta. Má þar nefna alþjóðlegar ferðamálaráðstefn-
ur, ráðstefnur um útgáfu stúdentablaða og ráðstefnu um efnahags-
og velferðarmál stúdenta.
Á vetrinum var komið á fót utanríkisnefnd til þess að fjalla um
samskipti íslenzkra stúdenta við erlend stúdentasamtök og önnur
alþjóðamál, er stúdenta snertir. 1 nefndina voru kosnir Bjarni Bein-
teinsson, Magnús Þórðarson, Jósef H. Þorgeirsson, Árni Björnsson og
Kristján Baldvinsson. Skilaði nefndin miklu og ágætu starfi.
1) 8. Alþjóöaþing stúdenta var haldið í Perú 15.—25. febrúar s. 1.
Völdust til fararinnar af hálfu stúdentaráðs þeir Ólafur Egilsson, stud.
jur., og Bolli Gústavsson, stud. theol. Héldu þeir fyrst til Kaupmanna-
hafnar og sátu þar auka-formannsráðstefnu, þar sem fulltrúar Norð-
urlandanna réðu ráðum sínum og mótuðu stefnu sína. Þaðan var
haldið til Amsterdam og síðan sem leið liggur til Perú. Áttu 66 lands-
sambönd stúdenta fulltrúa á þinginu, auk fjölda áheyrnarfulltrúa
ýmissa sérsamtaka.
2) Formannaráöstefna var haldin á síðastliðnu hausti í Uppsölum
og Stokkhólmi. Þessa ráðstefnu sóttu af hálfu ráðsins þeir Benedikt
Blöndal, stud. jur., og Jón E. Jakobsson, stud. jur. Voru rædd þar
vandamál Norðurlandastúdenta, m. a. skattamál, styrkir og lán til
stúdenta og fleira.
3) Vorhátíö í Uppsölum. Stúdentaráði barst boð um að senda full-
trúa á Vorhátíð Uppsalastúdenta. Tók Ámi Gunnarsson, er þá var
við nám í Svíþjóð, þátt í hátíðinni.
4) Námskeiö í Moskvu. Dagana 10.—16. september sótti Bragi