Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Síða 109
107
Kristjónsson, stud. jur., námskeið í Moskvu á vegum stúdentaráðs.
Fjallaði námskeið þetta um æðri menntun í Sovétríkjunum.
5) Skólahús reist í Túnis. Síðasta alþjóðaráðstefna stúdenta ákvað
að beita sér fyrir því, að stúdentar reistu úr rústum skólahús í Sakiet
Sidi-Youssef í Túnis, sem Frakkar jöfnuðu við jöfðu. Fóru héðan
tveir íslenzkir stúdentar, þeir Þórir Ólafsson, stud. philol., og Hjört-
ur Jónasson, stud. theol., og tóku þeir þátt í uppbyggingunni dagana
25. júlí til 1. september 1959 við erfið skilyrði, en höfðu engu síður
margháttaða ánægju af förinni, sem var hin ævintýralegasta.
6) Á síðastliðnum vetri var haldið skíðamót stúdenta í Tékkósló-
vakíu. SHÍ barst boð um að senda þangað fulltrúa. Þessu boði var
vísað til íþróttafélags stúdenta, sem þáði boðið, og sótti Valdimar
Örnólfsson mótið fyrir þess hönd.
Stúdentaráð sendi boð til hinna stúdentasamtakanna á Norður-
löndum um að senda fulltrúa sína til að vera viðstaddir hátíðahöldin
1. desember síðast liðinn. Ekkert þeirra sá sér fært að þekkjast boð-
ið, en sendu hins vegar vinsamlega kveðjur sínar.
Stúdentaskipti.
Síðustu árin hefir verið farið inn á þá braut, að deildarfélögin
skipulegðu stúdentaskipti við erlenda háskóla. Stúdentaráð hefir tek-
ið að sér að greiða fyrir stúdentaskiptunum svo og að samræma þessi
stúdentaskipti og hafa hönd í bagga með, að fé það, sem veitt er í
þessum tilgangi, kæmi sem sanngjamast niður. Fór fé, sem hand-
bært var, til styrktar 1) þrem tannlæknanemum, sem dvöldu við
tannlæknaháskólann í Kaupmannahöfn um mánaðar skeið, 2) guð-
fræðinema, sem fór til Skotlands og stundaði þar sín fræði, 3) Félags
læknanema, til þess að standa straum af kostnaði við dvöl nokkurra
þýzkra læknanema, sem hingað komu í stúdentaskiptum.
Nokkrar ráðstafanir voru gerðar til þess að koma á stúdentaskipt-
um milli fleiri aðila og landa, og átti stúdentaráð þar nokkurn hlut
að máli, t. d. Sovétríkin, ísrael, Kanada o. fl. Þetta bar þó ekki árang-
ur. Þar eð nokkur hluti innritunargjalda rennur nú til stúdentaskipta,
hefir heldur rætzt úr fjárhagshlið þessara mála, en þau þurfa hins
vegar í flestum tilfellum alllangan aðdraganda.
Menningarskipti við Minnesota.
Um þriggja ára skeið hafa allvíðtæk menningartengsl verið með
stúdentum við háskólann í Minnesota og Háskóla íslands, enda eru
margir þeirra fyrrnefndu af íslenzkum uppruna. Samskipti þessi hóf-
ust með stúdentaskiptum vorið 1956, en síðan hafa m. a. átt sér stað
gagnkvæmar bóka- og hljómplötusendingar.