Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.02.1923, Side 36
82 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
miðaður við þessar sömu uppliæðir, sem breytast árlega
eftir verðbreytingunum. Prósentuhækkun skattupphæðar-
innar á hverju ári miðað við skattupphæðina fyrir stríðið
sýnir því ekki réttilega hækkun skattsins, því að tekju-
grundvöllurinn, sem skatturinn miðast við, breytist líka.
Ef skatthæðin væri óbreytt ætti hún að nema jafnmiklum
hluta af útgjöldunum öll árin eða hækka í sama hlutfalli
sem öll útgjöldin. Einungis það sem skattarnir hækka
meira er veruleg aukning á skattabyrðinni.
Þá eru loks eftir önnur útgjöld, svo sem viðhald og
endurnýjun búsáhalda, læknishjálp, bækur og blöð, tóbak
og vínföng, skemtanir o. fi. Það iiefir ekki verið gerð nein
tilraun til þess að áætla hækkun þessara útgjalda sér-
staklega, iieldur hefir verið gert ráð fyrir sömu hækkun
á þessum lið sem á öllum öðrum liðum að meðaltali, að
undanskildum sköttum.
Þá skal eg skýra frá niðurstöðunni af útreikningun-
um og sný eg mér þá fyrst að matvörunum. A 2. töfiu,
þar sem öllum matvörunum er skift í 9 fiokka, má sjá
hve mikil matvöruútgjöld þeirrar fjölskyldu, sem gengið
er út frá, liafa verið á hverju ári síðan 1914 bæði í heild
sinni og til hvers matvörufiokks fyrir sig. Á yfirlitinu sést,
að til þess að kaupa sömu matvörur, sem fyrir stríðið
kostuðu 846 kr., þurfti síðastliðið haust 2227 kr., en þeg-
ar dýrtíðin kornst hæst, árið 1920, 3584 kr.
Á vísitölunum í 2. töfiu má sjá hve mikil verðliækk-
unin hefir verið á matvörunum alls og í hverjum fiokki
á hverju ári síðan fyrir stríðið. Hefir hún verið töluvert
mismunandi á hinurn ýrnsu matvörufiokkum. Pram að
1918 er stöðug verðhækkun í öllum fiokkum, en 1919 falla
aftur 5 þeirra nokkuð, en hinir 4 hækka allmikið (sykur
og kaffi, kjöt og fiskur) og einn þeii-ra (kjöt) kemst þá í
hæsta verð (rúmlega 5-falt). 1920 fellur kjötfiokkurinn
mikið og er hann einn um það, því allir hinir hækka og
komast þá á hæsta stig. Mest hækkar sykur, sem tvöfald-
ast í verði á því ári og kemst í 7-falt verð á við það sem
var fyrir stríðið. Árið 1921 falla ailir fiokkar mikið en