Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.02.1923, Side 56

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.02.1923, Side 56
102 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. ur fengið hana greidda hjá dvalarsveit sinni, og telst hún þá fátækrastyrkur veittur því foreldri, sem hefir van- rækt framfærsluskylduna. 17. gr. flytur nýmæli handa konunni. Hún heimilar henni, þegar hjón hafa slitið sam- vistir, án þess að hafa fengið skilnaðarleyfi, að krefjast þess, að valdsmaður banni eiginmanni hennar að raska sameign þeirra, meðan þau eru óskilin að lögum. Eftir núgildandi lögum hefir eiginmaður einn umráð yfir fé- lagsbúinu, svo nýmælið færir konunni nauðsynlega rétt- arbót, og mun einnig vera sett með hagsmuni barnsins fyrir augum, því ekki skiftir það barnið litlu, að þess sé gætt, að félagsbúi foreldranna verði ekki sundrað eftir eigin geðþótta eiginmanns, áður en valdsmaður kemur til að gæta réttar þess. Jafnframt framfærsluskyldunni verður að geta u p p- eldisskyldu foreldranna samkv. 11. gr., og gætir þar mest f r æ ð s 1 u skyldunnar. Samkvæmt lögum nr. 59, 22. nóv. 1907, um fræðslu barna, er foreldrum gert að skyldu að annast fræðslu barna til fullnaðs 10 ára aldurs, og er þar ákveðið, hvað bam á að hafa numið á þeim aldri. Eftir þann tíma er foerldrum skylt að koma börnunum til fræðslu í skóla, eða á annan hátt að sjá um, að þau njóti þeirrar fræðslu, sem lögboðin er undir fermingu. það varðar foreldra hegningu (sekta), ef þau vanrækja fræðsluskylduna, og getur vanrækslan leitt til þess, að barn verði tekið með valdi frá foreldr- um, og því komið fyrir til fræðslu annarsstaðar, sbr. 1. gr. fræðslulaganna og 49. gr. fátækralaganna. pá verður að minnast hér á einn rétt skilgetins barns gagnvart foreldi'um, en það er erfðaréttur þeirra eftir foreldrin. Frá fyi’stu tímum hafa ættingjar tekið fé eftir lát- inn frænda. Er víst, að sá arfur, frændsemisarfur, hefir uppranalega verið eina erfðaheimildin. Löngu síðar fóru menn að geta ráðstafað eignum sínum eftir sinn dag, svokallaður bréfarfur, sem kirkjan mun hafa innleitt, því hún hafði gott lag á, að fá menn með þessu móti til þess

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.