Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Qupperneq 5
Formáli.
Á siðasta Fiskiþingi var svo ákveðið, að gefa skyldi út skýrslu
um fiskirannróknir Fiskifélagsins einu sinni á ári, enda veittur sér~
stakur styrkur til þess að gjalda með útgáfukostnaðinn. Með ákvœði
þessu var skýrsla rannsóknanna gerð viðskila við skýrslu Fiskifé-
lagsins, sem eins og kunnugt er, kemur út á tveggja ára fresti.
Rannsókna-shýrslan kemur því út sérstök, og hér birtist fyrsti ár~
gangur hennar i hinni nýju mynd. og er þar sagt frá árangri rann-
sóknanna á öðru starfsári þeirra. Vegna erlendra fræðimanna gerði
Fiskiþingið ráð fyrir að skýrslunni fylgdi útdráttur á einhverju
stórmálanna, t. d. ensku.
Skýrsla þessi er að mörgu leyti með öðrum liœtti en œski-
legt væri, og fráganyur i rnörgu fráhrugðinn þvi, sem bezt mœtti
vera. Veldur þessu sparnaðarviðleitni. Reyndar verður þvi ekki
neytað, að það sem sparast á einn hátt, tapast á annan, með
þessu móti. Nœgir þar að benda á yfirlitin, þau eru ylirleitt allt-
of rúmfrek, og mœtti fara minna fyrir þeim, ef þau vœru prentuð
sem myndir, en myndi það hafa aukinn kostnað i för með sér. Þá
vœri þörf á þvi að sýna stœrð á fiski, miðað við stœrð á sama stað
og tima nœstu ár á undan (Deviations-linurit), eins og nú er gert
i erlendum frœðiritum af þessu tagi, en til þess þyrfii einnig mynda-
mót. Loks vœri ekki vanþörf á nokkrum kortum, og einstöku öðr-
um myndum, lesmálinu til skýringar, en allt verður það að biða
betri tima. Eigi má heldur gleyma þvi, að það krefst nokkuð mik-
illar vinnu að búa til myndir og kort, það gœti fljótlega tekið
mikinn tima frá sjálfum rannsóknunum, meðan engum aðstoðar-
mönnum er á að skipa.
Ég bið almenning velvirðingar á þvi, að skýrsla þessi kemur
nokkuð seinna út en áformað var í fyrstu, og æskilegt vœri, stafar
það af þvi, aö ég varð aö hverfa hurt frá störfum mínum, og verja
tveim mánuðum til utanlandsfarar.
Hér á eftir verða fyrst taldar þorskrannsóknir sem gerðar hafa
verið á árinu, þá síldarrannsóknirnar, og loks verða annara rann-
sókna minnst. .....