Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 15
13
ungur af fiskinum meira en 99 cm á lengd (sbr. 3. yfirlit). Að öðru
leyti var stærðin nokkuð svipuð alla vertíðina, nema hvað fiski
fór smáfækkandi í stærðarflokknum 85—89 cm og dálitið fór að
bera á smælki í síðustu mælingunum (fiski, sem var styttri en 70 cm).
Tvær mælingar voru gerðar á netafiski, önnur í apríl, hin í
raaí. Eins og 4. yfirlit ber með sér, var netafiskurinn, eins og
vænta mátti mun vænni en lóðafiskurinn, og auðsætt er af yfir-
litinu að hann fór vaxandi að stærð eftir því, sem leið á vertíðina.
Þannig var 12.7°/0 af fiskinum yfir 100 cm á lengd í apríl, en
26.2°/0 í maí, og það sama var að segja um fisk af stærðinni
90—99 cm, honum fór einnig hlutfallslega fjölgandi, en á hinn
bóginn varð hlutfallslega minna um allan smærri fisk.
4. yfirlit. Þorskur. Vestmannaeyjar 1932. Net. Stærð.
Stærð °/0
75-79
3.3
1.6
■
I
14,—17. apríl
3. mai.