Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Side 33

Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Side 33
31 Tafla 18. Þorskur. Bolungavík 1932. Hrygnufjöldi (í °/0 af öllum fiski). Stærð 19. febrúar 15. marz 22. april 2. maí 100+ 50.0 85.<' 79.0 76.0 90—99 71.5 76.0 76.0 80.5 80—89 63.0 67.0 66.0 64.0 70—79 42.5 48.0 61.5 46.5 69-f- 43.5 49.0 52.6 36.0 Meðaltal 51.5 64.0 52.0 55.0 d. Aldur. 19. febrúar voru eftir þvi, sem séð varð af aldurs- rannsóknunum, aðeins fimm árgangar í aflanum, nefnilega 7., 8., 9., 10. og 13 vetra gamall þorskur. Af 13 vetra fiski var þó sama og ekkert, af 10 vetra fiski lítið, en 9 vetra fiskur var gjörsamlega yfirgnæfandi. í marz var komin talsverð breyting á. Þá voru fjórir aðal-árgangarnir orðnir nokkuð jafnir (7—10 vetra fiskur), nokkuð meira bar þá á eldri fiski, enda þótt ekkert veiddist af honum að ráði, og fjórir yngri árgangar voru farnir að skjóta upp kollin- um (3—6 vetra fiskur). Síðast í apríl hélzt þessi samsetning aflans nokkurn veginn óbreytt, nema hvað 8 vetra fiskurinn var þá orð- inn sterkastur og 7 vetra fiskurinn að mestu leyti horfinn (12. yfirlit). e. Hrygning. Þótt merkilegt megi heita, virðast líkur mæla með því að nokkur hrygning hafi farið fram í Djúpinu þegar i febr. I mælingu þeirri, sem þá var gerð, var athugað hvaða fiskar af þeim, sem rannsakaðir voru, voru með rennandi hrognum og svilum, og sýnir eftirfarandi tafla (19) árangurinn af þeirri rannsókn. Sé litið á aftasta dálk töflunnar, verður það ljóst.að mest hefir hrygnt af smæsta fiskinum (meðaltal ll.l°/0) og enginn fiskur lengri en 80 cm hefir hrygnt á þessum stað og tima. Fiskurinn, sem var að hrygna, var 7—9 vetra að aldri. Af 7 vetra fiskinum hrygndi 11.5°/0 af 8 vetra fiskinum 11.1 °/0 og af 9 vetra fiskinum aðeins 5.8°/0. Þegar á allt var litið, taldist svo til, að 12. hver fiskur væri að hrygna (8.5°/0).

x

Ársrit Fiskifélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Fiskifélags Íslands
https://timarit.is/publication/590

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.