Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 42

Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 42
40 Eftirfarandi tafla gefur greinilegt yfirlit yfir aflann í ýmíjum mán- uðum, af 8, 9 og 10 vetra fiski, eldri fiski og yngri fiski. Þegar á alt er litið, bar mest á gamla fiskinum í marz, maí og júní, en á unga fiskinum í apríl, og svo eftir að kom fram í júlí—ágúst, en mest var um hann i október. Þremenningarnir frægu, sem sköpuðu megnið af fiskimerðinni á árinu, víðast við strendur landsins, mynduðu einnig megn aflans á Norðfirði. Reyndar bar þar minna á 9. vetra fiskinum en víða annars staðar, en hinir árgangarnir tveir bættu það upp. (Sjá 30. töflu). Tafla 30. Þorskur. Norðfjörður 1932. Yfirlit yfir aldurinn. Aldur 22. marz 19. apríl 11. inai 7. júní 7. júli 10. ág. 8. sept. 7. okt. 11 V.+ 36.4 6.9 46.1 23.2 8.5 5.6 6.2 4.2 8-10 V. 59.1 64.0 47.5 69.0 79.6 74.1 66.3 63.4 7 V. -r- 4.5 29.1 6.4 7.8 11.9 20.3 27.5 32.4 Samt. 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 e. Aflamagn. Alla mánuðina fékk ég nokkrar skýrslur um aflamagn, nema í júlí og október. í marz var aflamagnið 137 fisk- ar (að meðaltali á 1000 öngla), en í apríl var það komið upp í 308. Stafaði það mestmegnis af því, að 8 vetra fiskurinn hafði sex- faldast að tölu, en 10 vetra fiskurinn fjórfaldast. Á hinn bóginn hafði elzti og yngsti fiskurinn gengið burt. í maí var aflamagnið aftur komið niður í 194, því fækkað hafði í öllum árgöngum, nema í elzta fiskinum, sem hafði fjórfaldast að tölu. Þetta aflamagn helzt nokkurn veginn óbreytt í júni, því enda þótt nokkuð af fiski síaðist burt úr sumum árgöngunum, bættist öðrum að sama skapi. í ágúst var aflamagnið komið niður i 100, því fiskur af öllum aldri hafði gengið burt, nema af yngsta fiskinum, sem ofurlítið hafði bæzt. í september var aflamagnið stigið nokkuð aftur enda hafði þá komið nokkuð af ungum fiski og 8 vetra fiski á miðin. (Sjá 31. töflu). Tafla 31. Þorskur. Norðfjörður 1932. Aflamagn. Aldur 22. marz 19. april 14. maí 7. júní 10. ág. 8. sept. 7. v. -1- 6 91 12 15 20 36 8. v. 10 60 5 60 48 61 9. v. 19 30 6 11 6 3 10. v. 53 106 82 60 20 23 11. v. + 49 21 89 44 6 8 Samt. 137 308 194 190 100 131

x

Ársrit Fiskifélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Fiskifélags Íslands
https://timarit.is/publication/590

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.