Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Síða 43
41
9. Togaraaflinn.
a. Gögn. Safnað var kvörnum og mælt á togaranum »Skalla-
grimur« og varðskipinu »Þór«. Gögnum var safnað við Vestmanna-
eyjar, á Selvogsbanka, Köntum í Faxaflóa, Jökuldjúpi, á Hólnum
við ísafjörð, Hornbanka og í Húnaflóa. Samtals var mælt 4976 og
teknar kvarnir úr 716.
Tafla 32. Þorskur veiddur á Skallagrimi og Þór. Gögnin.
(Nokkuð af smáfiski, sem mælt var á Skallagrimi, ekki talið með).
Skip Tími Vestm. Selvogs banki Suður- kantur Jökul- djúp ísafj.- djúp Horn- banki Húnafl. áll Samt.
Þór 11.—14. ap. 451 451
— 30/3—21/4 1407 1407
Skallagr 1. maí 629 629
Þór 1. maí 500 500
Skallagr 18. maí 628 628
— 25. maí 622 622
27. maí 219 219
Samtals: 451 1407! 629 500 628 622 219 4456
b. Stærð. Við Vestmannaeyjar og á Selvogsbanka var megn-
ið af fiskinum 70—90 cm á lengd, en nærri helmingur aflans var
75—84 cm. Á Selvogsbanka var fiskurinn dálítið smærri en við
Vestmannaeyjar. Á Suðurköntum var vænni fiskur, eins og sjá má
af töflunni, sem hjer fer á eftir, mest var þar um 85—89 cm
langan fisk. í Jökuldjúpinu voru hjer um bil allar stærðir í aflan-
um, og fiskurinn því mjög misjafn. Á vestur- og norðurmiðum,
sem náð varð til, var liskur miklu smærri en í hlýja sjónum, þar
var allsstaðar mjög mikið af smáum fiski (69 cm og smærri), þó
einkum á Hornbanka. Þó var einnig talsvert af miðlungsfiski, en
litið af stórum.