Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 51

Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 51
49 Langmest af síldinni var sumargotssíld, en lítilsháttar var inn- anum af ungsíld, sem auðséð var að ekki myndi gjóta á árinu. Sú síld var mun smærri en hin þroskaða sumargotssíld, enda þótt einnig hún væri mjög smá. Ungsíldin nam: 22. maí 9.4°/0, en 31. maí 6.4% af allri þeirri síld, sem rannsökuð var. Meðallengdin á henni var 1—2 cm minni en á allri síidinni. b. Austfirðir. Við Austfirði veiddist óvenjulega mikið af síld a árinu. Vil ég hér taka 4 sýnishorn sem dæmi. Meðalstærðin á síld, sem veiddist á Hellisfirði 27. jan. í snyrpi- nól, var 22.94 cm. í henni var um 2% af hafsíld (30 cm á lengd og stærri), megnið var því míllisíld og smásíld. Langmestur hluti sildarinnar var 4 og 5 vetra gamall (54°/o og 37°/o), en hitt var 3 og 8 vetra síld (8°/0 og 1%). Meðallengdin eftir aldri, var sem hér segir: 3 vetra: 18.50 cm. 4 — 22.17 — 5 — 24.54 — 8 — 26.50 — Annað sýnishorn fékk ég frá Hellisfirði, sú sild hafði veiðst 3 febr. Eins og vænta mátti var hún í öllu mjög lík sildinni í fyrra sýnishorninu, bæði um stærð og aldur. Mikinn hluta sumars veiddist talsvert af síld á Austfjörðum. Fekk ég nokkur gögn til rannsókna frá Eskifirði. Samtals mun hafa veiðst um 1200 tn., en þar af voru saltaðar 1084 tn., hitt var mest stór sild, sem mikið var fryst af. Síldin var flokkuð eftir stærð, og taldist svo til að af annari stærðinni hafi farið um 600 í tunnuna, og nam tunnufjöldinn af henni ca. 40% af öllum tunnufjöldanum, en af hinni sildinni fóru um 900 í tunnuna, og sú síld nam ca. 50%, og mun síld sú, sem fryst var eða ekki var hirt, hafa numið 10%. Sé gert ráð fyrir, að af stóru síldínni, sem fryst var, myndu hafa farið 400 í tunnuna, verður niðurstaðan þessi:1) 120 tn. 400 stk. í tunnuna, eða 48000 síldar samtals. 480 - 600 — - — — 288000 — — __ 600 - 900 — - — — 540000 — — Samtnls: 1200 tn. 876000 sildar. Af síld þessari fékk ég á fimmta hundrað hingað suður til rannsókna, en því miður var sildin illa til reika þegar hingað kom, ') Hér er gert ráð fyrir tveimur aðal-stærðum af saltaðri síld. 4

x

Ársrit Fiskifélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Fiskifélags Íslands
https://timarit.is/publication/590

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.