Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Side 56

Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Side 56
54 Lengd og þungi. Þegar um hafsíld er að ræða, er það talið láta nærri, að þunginn, reiknaður í grömmum, sé tíu sinnum sú tala, sem tiltekur Iengdina í cm. Sé t. d. einhver síld 35 cm á lengd, ætti þunginn eftir þessu að dæma, að vera 350 grömm. Þessi regla er þó ekki alveg nákvæm, og kemur þar tvennt til greina. Fyrst og fremst er síldin þyngri í hlutfalli við lengdina, því stærri sem hún er. Því við hvern cm, sem við lengdina bætist eykst einnig þykkt og hæð síldarinnar, en þar sem þyngdin er ekki einungis háð lengdinni heldur einnig þykktinni og hæðinni, leiðir það af sjálfu sér, að þyngdin, mæld í grömmum, eykst örar en lengdin, mæld í cm. í öðru lagi ber þess að gæta, að fitumagn síldarinnar er æði mismunandi, en eftir því breytist þyngdin, þótt lengdin sé sú sama. Ef lengdin er þekkt, má reikna út þyngdina, eftir þessari reglu: þar sem g táknar þyngdina í grömmum, I lengdina mælda í cm og k er tala, sem breytist með holdafarinu, og þá h'klega einkum fitunni. Til þess að finna k, sem við getum nefnt fitutöluna, fyrir íslenzku síldina við Norðurland, mældi eg og vóg nokkuð af síld, og þar sem bæði g og 1 var þekkt, fann ég k með útreikningi þannig eftir reglunni: k _ ms K- ]3 Eftirfarandi tafla sýnir árangur þessara rannsókna. Rannsakað- ar voru 800 síldar, sem veiddust á Haganesvík, 5. ágúst. Síldarnar voru fyrst mældar með nákvæmninni hálfur cm, og síðan var öll- um síldum af sömu stærð, kastað í sérstakan bala. Þegar mæling- unni var lokið, voru síldarnar í hverjum bala vegnar í einu lagi, þunganum deilt með fjölda síldanna í balanum, og þannig fundinn meðalþyngdin á hverri síld í hverjum stærðarflokki. Þegar heim var komið, var fitutalan, k, reiknuð út, og var hún, eins og séð verður af töflunni, frá 0.76 uppí 0.80. Stærst var hún í smæztu síldinni.

x

Ársrit Fiskifélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Fiskifélags Íslands
https://timarit.is/publication/590

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.