Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Side 62

Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Side 62
60 Sé spurt um hversu mikið átumagn var í reknetasíldinni, í hlutfalli við átum. í snyrpinótasíldinni, verður því svarað með því að tilgreina, hve mörgum af hundraði fyrri talan nemur, miðan við þá siðari, á sama stað og sama tíma. Tafla 48 sýnir að átum. í reknetasíldinni hefur jafnaðarlega numið 28°/0 af átumagninu í snyrpinótasíldinni, og verið hlutfallslega meira framan af tímanum en seinni partinn. c. Átumagn og aílamagn. Af þvi, sem að framan er greint, er það augljóst, að átumagnið er harla breytilegt, eftir því, um hvaða stað og tíma er að ræða. Nú er spurningin, stendur átu- magnið í beinu sambandi við aflamagnið, þannig að mest veiðist þar, sem mest er áta? Þetta atriði er feikna þýðingarmikið, því reynist átumagnið í sjónum að vera mælikvarði á aflamagnið, þá geta áturannsóknirnar gefið upplýsingar um það, hvar leita skuli síldar. Lítum nú á töfluna, sem hér fer á eftir og yfirlitið, þar sem sýnt er sambandið á milli þessara tveggja liða. Skipti maður öllum þeim síldarförmum, sem í land komu á Siglufirði, og rannsóknirnar náðu til, niður í flokka, eftir því, hversu mikið veiddist að meðal- tali (mælt í tunnum), kemur í ljós, að eftir því, sein aflinn vex, vex einnig átumagnið. Tafla 48. Átumagn í reknetasild i °/0 af átumagni i snyrpi- nótasild á sama stað og tima, Norðurland 1932. Tímabil Hag.og Sigl. Eyjafj. Meðalt. JÚlí 3. 28°/0 (28) Ágúst 1. ^O o CO 10°/0 28 (46) 19

x

Ársrit Fiskifélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Fiskifélags Íslands
https://timarit.is/publication/590

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.