Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 65

Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Page 65
63 koman sýnd. Er deginutn þar skipt niður i eyktir, og magafjöldii sá, sem rannsakaður var á hverjum tím t og stað, tiigreindur. Loks var reiknuð út meðaltal fyrir allan sólarhringinn á hverjum stað,. og átumagnið á hverri eykt síðan reiknað í °/0 af átumagni sölar- hringsins. Eins og sjá má af töflunni hefur átumagnið á Eyjafirði: náð hámarki kl. 6—9, en á Húnafl. og Skagaf. kl. 9—12. Á öllum: þessum stöðum náði átan aftur hámarki kl. 18—21 um kvöldið. Þar sem hér er að ræða um samræmi á milli þriggja staða, mæla líkur með því, að síldin taki aðallega til sín fæðu laust fyrir hádegi' fyrri hluta dags, ef til vill kl. 9, og svo aftur seinni partinn, ef tiM vill rétt eftir miðaftan. Viðvikjandi þessu atriði, þarf náttúrlega að gera víðtækar rannsóknir, til þess að fá fullnaðarútkomu, sem byggð' er á miklum og áreiðanlegum gögnum. Þegar slík útkoma er fengin, má finna átumagnið á hvaða stað sem er, með því að margfalda meðalátumagnið í hverjum maga, sem rannsakaður var, með 100,. en deila síðan með þeirri tölu, sem segir til um það, hve mörgumi hundruðustu hlutum af átumagni dagsins átan á eykt þeirri, semt sildin veiddist á, nemur. Tafla 50. Hafsíld, veidd við Norðurland i snyrpinót 21.—31.. júlí 1932. Átumagn eftir tímum dagsins. Húnaflói Skagafjörður I Eyjafjörður Kl. Magafj Atomagn ccm. 01 10 Mngnfj. Áiumagn ccin. 01 /0 Magafj. Átuniígn ccm. 01 10 0-3 0 10 2.2 59 10 3.8 62 3—6 10 2.8 48 0 20 4.8 80 6—9 0 20 2.5 68 40 6.2 103 9—12 10 12.5 215 20 4.0 108 40 5.6 93 12—15 30 3.3 57 10 20 54 20 5.0 83 15—18 0 0 10 6.5 108 18-21 20 4.8 83 20 7.0 189 40 9.5 158 21—24 0 30 43 116 20 6.7 112 | 70 5.8 100°/o 110 3.7 100°/0 200 6.0 lOOO/o Átumagn og sjávarhiti. Þegar öllu er á botninn hvolft, er það sýnt af bví, sem að framan er sagt, að átumagn og aflamagn virðast vera tveir liðir í sömu orsakakeðju. Að öllu öðru jöfnu, er mest um sild, þar sem mest er um átu. Vitnisburð um átumagnið niá fá, með því að rannsaka mikinn fjölda síldarmaga frá ýmsum stöðum. Mætti þá blátt áfram kortleggja allt síldveiðasvæðið, og sýna Þannig hvar er mest eða minnst áta, á hvaða tímabili, sem vera skal. Þetta er nú gott og blessað, ef á það er litið sem upp- lýsingarstarfsemi, en sá er gallinn á, að þegar rannsóknirnar hafa

x

Ársrit Fiskifélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Fiskifélags Íslands
https://timarit.is/publication/590

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.