Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Síða 67
65
að finna kjörhita (Optímalhita) rauðátunnar (og Ijósátunnar), en
þegar hann er fundinn með fullri vissu, geta víðtækar hitamæling-
ar skorið úr því, hvar leyta skuli síldar. Eins og nú standa sakir,
veltur allt á því, að menn beri traust til þessara rannsókna, og
sýni þeim skilning, því þá og því aðeins mun takast að afla þeirra
gagna, sem að haldi geta komið.
III. Aðrar rannsóknir.
Nokkru hefur verið safnað af gögnum til svifrannsókna, en
ekki unnist timi til þess að vinna úr þeim. Sama er að segja um
hitamælingar og saltmælingar, því sem til er af rannsóknum frá
árinu, er ekki svo langt komið, að hægt sé að skila því í þessari
skýrslu. Þorkell Þorkellsson, forstjóri Veðurstofunnar, hefur látið
rannsaka seltu fyrir mig, en skýrslur um þær rannsóknir, og yfir-
Jitskort og töflur yfir hitann, verða að bíða, þangað til tóm vinnst
til þess að vinna úr þeim. Vil ég hér gera grein fyrir tveimur smá-
rannsóknum, sem ég hef gert á árinu, fjalla þær um samanburð á
lóð og neti, og svo aldursákvarðanir á steinbít,
1. Samanburður á lóð og neti. Eins og að framan er greint,
hef ég mælt aflamagnið á báta, sem veiða með lóð, sem fjölda
fiska, veidda á 1000 öngla að meðaltali, en á báta, sem veiða með
netum, mælist aflinn í fjölda fiska veidda í 10 net til jafnaðar. En sá
er nú gallinn á gjöf Njarðar, að ekki er auðvelt að samræma þær
upplýsingar um fiskimagnið, sem lóð og net gefa. Þess vegna hef
ég gert nokkrar tilraunir, og útreikninga með þetta, en einnig til
þess að kynna mér, hve stóran fisk netin veldu helzt.
Eftir upplýsingum, sem hr. Helgi Benediktsson útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum hefur góðfúslega látið mér í té, eru net Vest-
mannaeyinga þannig úr garði gerð. Möskvastærðin (Iegglengdin)
er 10.5 cm (4 tommur), og i dýpt netsins (hæðinni) eru 22 möskv-
ar þannig að dýpt netsins mæld i cm er um 230. Lengd slöng-
unnar er um 113 m (60 faðmar), og þar sem fellingin er 50°/0,
verður lengd netsins ca. 56.5 m (30 faðmar). Flatarmál hvers nets
er því 130 fermetrar. Netin eru bundin saman í trossur, en í hverri
trossu eru 12—18 net. Hver bátur mun vanalega hafa 3 trossur,
en varla fleiri en 6, og sjaldan minna en tvær.
2—3. maí voru mældir 500 lóðafiskar, og 500 netafiskar, og
skipt niður í 5-cm stærðarflokka eins og venja er til. Kom þá það
i Ijós, sem reynslan hefur marg sýnt og sannað, að netafiskurinn
er miklu stærri og miklu jafnari en lóðafiskurinn. Af lóðafiskinum
5