Ársrit Fiskifélags Íslands - 01.01.1933, Síða 70
68
130 fermetra af neti, ef enginn fiskur hefði sloppið, og samsvara
því 2.31 net eða ca. 300 fermetrar af neti, 1000 önglum.
2. Steinbítsrannsóknir. Loftskeytamaðurinn á Skallagrími, hr.
Hilmar Norðfjörð, safnaði fyrir mig nokkru af steinbítskvörnum,
mældi og ákvarðaði kyn, eftir því, sem því varð við komið. Kvarn-
irnar era ákaflega smáar, og erfitt að finna þær, enda hefur enginn
fengist við aldursrannsóknir á steinbít, svo ég viti. Við rannsókn
á kvörnum kom það i ljós, að þær var hægt að nota til aldurs-
ákvarðana, að minnsta kosti þegar um ungan fisk var að ræða.
Gögn þau, sem mér hafa borist, eru þó svo lítil, að eigi er vert
að treysta á þau til hlítar, en læt ég samt fylgja töflu, er sýnir
árangurinn af rannsókn 29 smá-steinbíta, sem veiddust á Dritvíkur-
grunni, 9. maí, 1932.