Búnaðarrit - 01.01.1905, Page 264
260
fara eigi hækkandi og setjum vér liðinn því eigi hærri.
Hann var áður 400 kr.
9. Þess er áður getið, að styrkurinn til utanfara
hrökkur illa, þó að mörgum sé synjað og valið úr. Til
hinna fyrirhuguðu bændaskólaþurfa að koma menn með
prófl frá landbúnaðarháskólanum, og nú vilja nokkrir
efnilegir menn ganga þá leið, sem búnaðarþinginu mun
nánar skýrt frá. Þá teljum vér og gott, að einar 3—4
rjómabústýrur gætu verið á smjörbúum í Danmörku
vetrarlangt, og þó að takist að útvega þeim áfram kost-
naðarlitla námsstaði, munar þó um það, verði þær
styrktar af þessum gjaldlið. Af Liebeslegati má nú
framvegis vænta 450 kr. styrks á ári til búnaðarnáms
erlendis, en þrátt fyrir þá góðu hjálp, hefðum vér gjarna
kosið að þessi liður hefði verið færður enn meira upp.
10. Um mjólkurmeðferðarkensluna er áður talað.
Vér viljum þó víkja að því, hvort ástæða er beint til þess
að halda námsstyrk til stúlknanna á skólanum öðrum en
dálitlum ferðastyrk, þar sem eftirsóknin er svo mikil að
komast á skólann og góð atvinna í aðra hönd. Við
það bætist og, hve fljótt margar bústýrur gefa starfið frá
sér. Mundi eigi vera eins heppilegt að verjafénu, sem
gengið hefir til að styrkja stúlkurnar á skólanum, til
utanfararstyrks til hinna efnilegustu til framhaldsnáms?
11. Félagsstjórnin leggur eigi fram neinar áætlanir
um húsbyggingu fyrir Hússtjórnarskólann, vildi eigi eyða
fé til þess, þar sem henni var fyrir löngu kunnugt um
að Iðnaðarmannafélag Reykjavikur vildi kaupa lóðina, og
liggur nú fyrir skriflegt tilboð frá félaginu um það, sem
búnaðarþingið verður að ráða fram úr. í sambandi við
Hússtjórnarskólamálið kemur umsókn íröken Jónínu Sig-
urðardóttur um framhald á kenslu hennar nyrðra.
Vér setjum hér liðinn óbieyttan.
12. Til verkfæra sýningar og prófunar syðra og nyrðra
teljum vér nægja 500 kr. hvort árið. Ætti slík sýning
að vera á fleiri stöðum mundi sú upphæð vart duga.