Búnaðarrit - 01.01.1905, Síða 384
H
en til var ætlast, þó hefði vart farið fram úr brunabóta-
iðgjaldi, ef eigi hefði þurft að leggja fram fó til brunn-
gjörðar á lóð skólans, sem varð margfalt dýrari en við
var búist.
Styrkur til náms og ferða í útlöndum hefir verið
veittur skólakennara Jósef J. Björnssyni á Hólum 400
kr.,1 Sigurði ráðunaut Sigurðssyni 600 kr., búfiæðis-
kandídat HalWóri Vilhjálmssyni 500 kr., StefárJ Marz-
syni úr Eyjafirði 300 kr., rjómabústýru Guðrúnu Jóns-
dóttur 175 kr., rjómabúst-ýru Margréti Sigurðardóttur
150 kr., fjárrækt'irmanni Hallgrími Þorbergssyni 120 kr.,
Þórhalli Ólafssyni úr Reykjavík 100 kr., Einari ráðu-
naut, Helgasyni 500 kr., Jónntnn Jósafatsson Líndal úr
Húnavatnssýslu 300 kr.
Af Liebeslegati voru styrktir árið 1903: BenedilctG.
Blöndal úr Húnavatnssýslu, Bergur Helgasoh úr Vestur-
Skaftafellssýslu, Stefán Marzson, og Þorsteinn Stefánsson,
úr Austur-Skaftafellssýslu, hver meb 100 krónum, en
áiið 1904 var vöxtunum varið til að breyta hinum út-
lendu vaxtabréfum í innlend bankavaxtabréf, var það í
ráði árið á undan (sbr. Bún.rit XVII, bls. 238), en komst
fyrst til framkvæmdar í vetur sem Jeið, og kemur fram
í reikningi 1905.
Af öðrum styrkveitingum félagsins en þeim er
reikningarnir bera með.sér og frá er skýrt i Búnaðar-
i'ítinu á ýmsum stöðum, mætti meðal annars nefna 250
kr. styrk til Ólafs Hjaltesteðs til að koma upp sláttuvél.
Vélin verður væntanlega reynd nú ásamt 2 öðrum
sláttuvólum meðan búnaðarþingið stendur yflr.
Þá veitti félagið kand. Ásgeir Torfasyni 200 kr.
styrk til ferðalaga og annars kostnaðar við mórannsókn-
ir. Sami hefir tekið að sér rannsóknir á jarðvegi úr
Ctróðrarstöðinni og Viðey, og mun skýrsla hans um það
1) í samskonar skýrslu fyrir árin 1901—1902 er talið að lion-
um sé veittar 250 kr. (Búnaðarrit XVII, bls. 223), sem er mis-
‘gfmingur, sá hluti styrksins var fyrst útborgaður árið 1903.