Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 276
272 BÚNAÐARRIT
lóleg eða mjög sinuborin, og einkum ef hey hrekjast
og verkast illa.
Árið 1908 fluttist frá Islandi þorskaiýsi, hákarls-
lýsi og sellýsi samtals 9884 tunnur fyrir 235 783 krónur.
Ef lýsistunnan er reiknuð 210 pund, þá verður alt
lýsið 2 075 640 pd. á rúmiega llV3 eyris að meðaltali.
Reikni maður svo lýsið á 12 aura pundið, þá kostar það
alt saman 249 077 krónur. Ef alt þetta lýsi væri haft
til fóðurs, mundi það samsvara í minsta lagi 31752
tunnum af rúgi, ei kostuðu 635 040 kiónur, eða rúm-
lega 2V2 sinnum meira en lýsið. Ef alt þetta iýsi hefði
verið haft til fóðurs, þá hefði kornið hér ura bil 60
tunnur af lýsi að meðaltali á hvern hrepp. Það hefði
samsvarað alt að 191 tn. af rúgi til fóðurdrýginda, en
ekki kostað meira en 75x/2 tn.
Lýsisgjöfln er enn fremur lítið reynd hjá okkur, það
eg til veit. Það eru að eins fáeinir menn, sem eg veit
til að hafa geflð Jmm, hrossum og sauðfé lýsi, með
vondu heyi, og hæla þeir allir lýsinu, eins og fyr var
sagt. Af þvi að reynslan, sem eg veit um, er enn þá
htil, þá get eg ekki sagt, hvort alt lýsi er jafn-gott,
hve mikið af því er hentast að gefa, nó hve mikið má
gefa mjóikurkúm, svo að ekki komi bragð af mjólkinni
eða smjörinu. Yið frekari reyaslu rnundi þetta alt
skýrast.
Ef 33 pd. af iýsi hafa líkt fóðurgidi og 100 pd.
af rúgi, eins og eg geri ráð fyrir, og 1 pd. af rúgi er
talið að fafngilda 2^/2 pd. af töðu, þá er lika 1 pd. af
iýsi jafngott tíl fóðurs og 7^/a pd. af töðu. Telji maður
nú 1 pd. af töðu 5 aura virði, sem er gamalt lag, þá
er 1 pd. af lýsi líka 37^/2 eyris virði til fóðurs. Og ef
frekari reynsla skyldi staðfesta það álit á lýsinu, sem
þeir menn hafa, er eg veit til að hafa reynt það, þá
ættum við ekki að selja það út úr landinu og kaupa
aftur sama fóðurmagn í rúgi fyrir þrefalt hærra verð.
Það er mjög algengt í hafísa-árum, að heyfengur