Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 312
308
BÚNAÐARRIT
að gera steinsteypu vatnshelda. Venjulega er þá bland-
að í steypuna sem svarar 15°/o af þyngd sements-
ins, eg er þá bezt að hræra leirinn út í vatnið, sem haft
er í steypuna. Sé miðað við vatnið, verður leirinn ná-
iægt 20—25u/o af þyngd vatnsins (20—25 kílógrömm af
ieir í hverja 100 lítra vatns). Leir gerir steinsteypuna
að vísu ekki eins vatnshelda og áður nefnd efni, en hann
þéttar hana þó að miklum mun. Aðalkostir hans eru,
að engin hætta er á, að hann eyðileggist er tímar líða,
og að hann kostar víða hvar sama og ekki neitt. Með
tilraunum heflr sést, að styrkleiki steinsteypunnar minkar
dálítið, ef blandað er í hana svo miklum leir sem áður
er- sagt, en ekki munar það svo miklu, að það geti tal-
ist hafa verulega þýðingu við venjulega húsagerð.
Efni þau, sem eg tei hér í þessum síðari flokki,
koma því að eins til greina, að steinsteypa reynist ekki
vatnsheld. Af öllum þeim fjölda, sem eg hefi haft á
milli handa af slíkum efnurn, skal eg hér aðeins nefna
ólíumálningu, testalín og Edison waterproofing paint.
Olíumálningu er venjulega létt að útvega sér, og
ekki heldur sérlegt vandhæfl á að nota hana. Eigi að
mála steinsteypu er þó athugavert, að ekki má mála hana
meðan hún er ný. Málningunni er þá hætt við að skemm-
ast fljótt. Steinsteypan þarf heizt að verða nokkurra
mánaða gömul áður hún er máluð. Að sjálfsögðu verð-
ur steypan að vera vel þur, þegar málað er, þvi annars
vill málning fara illa, og. svo heldur hún þá rakanum í
steypunrii. Sé vel og vandlega gengið frá málningunni,
má fá yflrborð steypunnar vatnshelt með henni, að minsta
kosti sé marg-málað. Gallinn á olíumálningunni er að
málningarhúðin slitnar allfljótt af, og þarf því oft að
endurnýja, ef veggurinn á að haldast vatnsheldur.
Testalin heflr verið notað dálítið hér á landi. Það
gerir steypuna vel vatnshelda a. m. k. í bili, en sumstaðar
heflr reynslan orðið sú, að það hefir orðið íremur endingar-
lítið, og verður því að endurnýjast við og við, ef vel á