Dýraverndarinn - 01.05.1980, Blaðsíða 5
Hvalvertíðin þetla ár hófst 1. júní Þann dag gengu félagar úr náttúruverndarfé-
laginu, ,Skuld" í líkfylgd niður í Miðhce og höfðu þar athöfn í því skyni að
vekja menn til umhugsunar.
í samvinnu við Greenpeace og hún
stóð í 10 daga. Endaði 1. júní, —
daginn sem hvalvertíðin hófst. Á
sýningunni voru upplýsingar um
alla stórhvali. T.d. ljósmyndir af
hvölum í eðlilegu umhverfi þeirra.
Einnig voru sýnd drápstól, sem
notuð eru við hvalveiðar.
Kvikmynd og slides-myndir voru
sýndar oft á dag og talað með þeim.
Sýningin endaði svo, að sunnu-
daginn 1. júní gengum við með
líkkistu frá Ásmundarsal niður á
Austurvöll. Á undan „líkfylgdinni"
gekk stúlka, sem bar stóra ljós-
mynd af hval. Á Austurvelli voru
haidnar ræður og leikin sorgarlög
á celló. Ég held að þetta „uppá-
tæki" okkar hafi vakið athygli og
vonandi fengið það fólk, sem safn-
aðist saman til þess að horfa á okk-
ur og hlusta, hafi farið að hugsa
alvarlega um þessi mál.
— Hvernig var aðsóknin að
sýningunni?
Það komu um 500 manns.
— Og undirrituð verður allt í
einu afskaplega snobbuð og vill
vita hvort eitthvað af stórmennum
landsins hafi heiðrað sýninguna
með nærveru sinni.
Nei, það komu engin „þekkt
nöfn" eins og kallað er. Sennilega
er það Greenpease-nafnið, sem
hefur orsakað það.
— Hvernig má það vera, Jón,
að Greenpease-menn hafa svona
slæmt orð á sér hér á iandi?
Þeir hafa verið rægðir alveg
óheyrilega í fjölmiðlum, m.a. kall-
aðir hippalýður, sem lægi í sukki
og „dópi" Staðreyndin er hins vegar
sú, að flestir meðlimir Greenpeace
eru bindindismenn á vín og tóbak.
— Getur þú ímyndað þér hver
stendur að baki slíks rógburðar?
Hm, . . . einhverjir sem hafa
vald og peninga, — eiga persónu-
DÝRAVERNDARINN
legra hagsmuna að gæta. En Green-
peace er virt víða erlendis. Það er
eitt af fjölmörgum svipuðum félög-
um og ekki það stærsta, þó það hafi
eitt látið að sér kveða á íslandi.
— Veist þú nokkuð um hve
lengi Greenpeace hefur starfað?
Nokkur ár. Ég minni á atburð
sem átti sér stað þegar Frakkar
voru með kjarnorkusprengjutil-
raunir í Suður-Kyrrahafi þá sigldi
maður á skútu um mitt tilrauna-
svæðið. Þetta vakti heimsathygli.
Maður þessi heitir McTaggart, og
hann stofnaði Náttúruverndarsam-
tökin Greenpeace upp úr því.
Það er ekki víst að allir geri sér
grein fyrir því, að þegar svona
„bomba" springur neðansjávar, eyð-
ir sprengingin öllu lífi á margra
ferkílómetra svæði. Allt drepst,
fiskar, hvalir, — allt.
-— Segðu mér frá vísindamönn-
unum, sem eru nýbúnir að vera hér.
Þau dr. Sidney Holt og Silvia
Earle sem eru bæði heimsþekkt og
mjög færir vísindamenn á sínu
sviði komu hér til þess að kynna
málstað hvalaverndarmanna með
því að halda blaðamannafund og
fyrirlestur, auk kvikmyndasýning-
ar. Þau komu hér í tengslum við
Um höfrunga
Höfrungar búa yfir raunverulegri nieðaukvun sem
ekki er bundin við tegundina heldur nær langt út yfir
hana. Þannig hafa höfrungar t.d. margoft bjargað
mannslífum.
Vísindamaðurinn J. Cousteau hefur séð tvo grind-
hvali halda lífi í sjúkri hnýsu í lengri tíma.
Þegar höfrungskýr ber, fylgir henni önnur reynd kýr,
sem tekur á móti og sér um kálfinn fyrstu mínúturnar
á rneðan móðirin jafnar sig.