Dýraverndarinn - 01.05.1980, Blaðsíða 16
Dýravernd í
Keflavík
Dagana 25. febrúar til 10. mars sl.
var lagt niður hefðbundið skóla-
starf hjá 9- bekk í Gagnfræðaskól-
anum í Keflavík. Nemendum var
skipt í 5—7 manna hópa sem hver
um sig fékk eitthvert ákveðið verk-
efni að vinna, og áttu verkefnin
það eitt sameiginlegt að snerta
Keflavík á einn eða annan hátt.
Sem dæmi um verkefnin má nefna:
Veðurfar, gróðurfar, mengun, at-
vinnusaga, verðmætasköpun, heilsu-
gæsla o. s. frv. Hóparnir voru um
30 talsins. Einn til tveir kennarar
voru síðan leiðbeinendur í hverjum
hópi fyrir sig.
Eitt verkefnið fékk heitið
DÝRAVERND. Jórunn Sörensen,
formaður S.D.Í. er kennari við
þessa skólastofnun og var því nær-
tækt að hún tæki að sér að vera
leiðbeinandi hóps með slíkt verk-
efni.
Þeir nemendur, sem tóku þátt í
dýraverndunarhópnum voru:
Anna Þórhallsdóttir
Fanney Friðriksdóttir
Úr sýningarbás dýraverndunarhópsins
16
Hluti dýraverndnnarhópsins að störfum ásamt leiðbeinanda sínum.
Dýraspítalinn
Loks hefur dýralæknir tekið til starfa á Dýraspítala
Watsons í Víðidal. Það er danskur dýralæknir Erik
Ramskov Garbus að nafni. Hann hefur unnið í 7 ár á
mjög fullkomnum dýraspítala í Danmörku og lagt
sérstaka áherslu á lækningu smádýra og hesta. Beina
uppskurðir eru sérgrein hans.
Með honunr vinna á dýraspítalanum þær Sigfírð
Þórisdóttir dýrahjúkrunarfræðingur og F.dda Sigurðs-
son sjúkraliða.
Síminn á Dýraspítala Watsons er 76620.
S.D.Í. fagnar að þessu langþráða marki er náð.
/. 5.
Guðrún Geirsdóttir
Jóhanna Norðfjörð
Lilja Hafsteinsdóttir
Ragnheiður Ævarsdóttir
Svandís Georgsdóttir
Þar sem þetta er merk nýjung
bæði í íslensku skólakerfi og ekki
síður í dýraverndarstarfi verður hér
rakið í stórum dráttum hvernig
þetta verkefni gekk fyrir sig, —
hvernig það var unnið og hverjar
niðurstöður urðu er upp var stað-
ið.
Verkefninu var ætlað að fjalla
um húsdýrahald í Keflavík. Inni í
myndinni voru bæði þau dýr sem
höfð eru til nytja og þau dýr sem
kölluð eru gæludýr.
Nemendum var ætlað að kynna
sér:
— Hversu útbreitt húsdýrahald
væri í bænum.
DÝRAVERNDARINN