Dýraverndarinn - 01.05.1980, Blaðsíða 7
um. Við veiðum meira en stóra
hvali í úthafinu . . .
Já, við stundum hrefnuveiðar af
smábátum og drepum hrefnuna á
viðurstyggilegri hátt en tíðkast hef-
ur við nokkurt annað dýr. Notað-
ur er það sem kallað er „kaldur
skutull", þ.e. skutull án sprengi-
kúlu. Hrefnan, eins og aðrir reyð-
arhvalir sekkur við dauðann. Hún
má því ekki deyja fyrr en hún er
komin alveg að borðstokknum,
því ef hún sekkur geta þeir ekki
dregið hana upp. Dýrið dregur
trilluna klukkustundum saman, þar
til svo er af því dregið að hægt er
að draga það að borðstokknum og
lóga því þar. Arni Waag lýkir
þessum veiðum við að krók væri
skotið í lærið á hesti og hann síð-
an dreginn um völlinn í lengri tíma
eða þar til hann væri að dauða
kominn af blóðmissi og kvölum.
Og við skulum vera viðbúin því
þegar bannaðar verða veiðar á stór-
hvölum, verður stóraukin ásókn í
hrefnuveiðarnar. Það hefur nefni-
lega sýnt sig víða erlendis. Sovét-
menn veiddu í fyrra 900 höfrunga
í Suður-íshafinu og bræddu þá í
mjöl!
— Jón, þú segir „þegar" veiðar
verða bannaðar á stórum hvölum.
Þú ert bjartsýnn.
Ég er persónulega sannfærður
um að hvalveiðar verði lagðar af
frá íslandi innan örfárra ára. Það
er jafnvel útlit fyrir það strax nú í
sumar verði dregið mjög af kvóta
íslendinga og veiðar á búrhvalnum
jafnvel alveg stöðvaðar.
— Ha? Er ekki einmitt sagt að
það megi veiða ótakmarkað af hon-
um?
Einn lygaþvættingurinn enn, að
halda því fram að hann sé ekki
ofveiddur. Hvernig stendur á því
að meðallengd hans hefur dottið
DÝRAVERNDARINN
Gestrisni
Nú er vor á norðurslóðum,
nálgast sumarnóttin bjarta.
Enn er von á gestum góðum,
glaðvcerum með yl í hjarta.
Stefna í norður stceltir hvalir,
stoltir, rjálsir áfram líða.
Olduhryggir, öldudalir
atlot veita hópnum fríða.
Áfram, lengra áfra?n halda,
undraveröld laðar — bíður
U?n undirdjúp og öldufalda
ómar hvalasöngur þýður.
í skinni kálfar kátir bren?ia,
kemur sen?i að ferðalokum,
óþreyju í ceðum kenna,
ólátast með blástursrokum.
Fagna?idi við faðmlög hranna,
feigðarótti ei dýrum amar,
gru?iar ekki grcesku manna.
Gróðafýknin mantiúð lamar.
Böðlar sína bra?ida se?ida,
beittir skutlar loftið kljúfa.
Skemmtiför fcer skjóta?i e?ida.
Skep?iur kveðja veröld Ijúfa.
Hafsins milda, voldug vera,
vartiarlaus gegn tcekni manna,
þögul mátt þú böl þitt bera.
Blóðgar slóðir glcepi sa?ma.
Friður ríki í rá?iarsölum.
Ram??ia skutla gleypi loginn.
Yfir öllum hafsi?is hvölum
hvelfist heiður friðarbogi??n.
Edda Bjarnadóttir.
niður um rúmlega í meter á síð-
ustu 15 árum? Færustu vísinda-
menn telja að búrhvalurinn sé stór-
lega ofveiddur.
A borðinu hjá okkur liggur bók
sem ber heitið: The Whaling
Question. Opinber skýrsla ástralskra
þingmanna. Þetta rit gerði það að
verkum að Astralíumenn hættu
hvalveiðum og eru nú eindregnir
friðunarmenn hvala, tjáir Jón
mér. Hann bendir mér einnig á
skýrslu í ritinu yfir stofnstærðir
hvala í öllum heimshöfum. Þar eru
birtar tölur um stofnstærðir hinna
ýmsu hvalategunda en spurninga-
merki haft þar sem engar upplýs-
ingar eru til. Norður-Atlantshafið
er eitt stórt spurningamerki. Nán-
ast engar upplýsingar til og mest
vegna slælegra vinnubragða íslend-
inga.
— Að lokum, hver eru framtíð-
arverkefnin?
Núna erum við að vinna að
frekari félagasöfnun og fjársöfnun.
Einnig eru í undirbúningi aðgerð-
ir til þess að vekja athygil á mál-
staðnum. í vetur er stefnt að því
að hafa mikið starf í skólum og
eigum við von á kvikmyndum að
láni auk fleira efnis. Framtíðar-
áformin eru að halda áfram um-
ræðum og aðgerðum um verndun
hvala, bæti selunum við og síðan
náttúruvernd almennt. Til dæmis
að þrýsta á að friðuð svæði verði
ekki eyðilögð og forða náttúruperl-
um frá því að verða fórnað á altari
auðmagnshyggjunnar. Verkefnin
eru óteljandi og fólk gemr séð þau,
bara ef það opnar augun. Það er of
seint að iðrast eftir dauðann.
Og að lokum óska ég Jóni Baldri
alls hins besta með árangur af sinni
elju og þakka honum fyrir kom-
una.
Jórunn Sörettsen.
7