Dýraverndarinn - 01.05.1980, Síða 18
„Hundamálið”
í miðri fym starfsvikunni skeði sá atburð-
ur í Keflavík að lögreglan fór í hús, tók þar
hund, hafði á brott með sér og aflífaði.
Þarna gafst gott tækifæri til þess að lofa
hópnum að kynna sér gaumgæfilega atburð,
sem var nýbúinn að eiga sér stað.
Því miður er það þannig í landi okkar að
víðast livar eru hundaeigendur ótrúlega
réttlausir með dýrin sín. Svona atburðir
liafa skeð aftur og aftur og oftast hafa eig-
endur staðið u]rpi magnvana, þ.e. lögreglan
hefur „komist upp með“ að ráðast að hunda-
eigendum með makalausri harðýðgi og vald-
níðslu.
Áður en hópurinn var sendur af stað í
þennan rannsóknarleiðangur voru blaða-
greinar um málið lesnar gaumgæfilega.
Nemendum var sérsatklega bent á, að blaða-
greinar kynntu ekki allar hliðar mála. Rædd
voru ýmis vandkvæði á hundahaldi, t.d. að
fólk eigi ekki að láta hunda sína ganga
lausa og verða þannig öðrum til ama og
óþæginda. Það þurfi fullorðið fólk til að ala
hunda upp og bera ábyrgð á þeim o.s.frv.
Síðan var stjórnarskrá íslands lesin og þá
einkanlega þær greinar er kveða á um frið-
helgi einkalífsins og eignaréttarins.
Síðan fór hópurinn af stað og kannaði
málið. I ljós kom að brot hundsins var að
hann lrafði glefsað í telpu er var að gæta
hans, en hún hafði, ásamt fleiri krökkum,
verið í snjókasti. Hún hafði ekki hlotið
mikla áverka, aðeins smáskrámur.
Þegar lögreglan kom og sótti hundinn
var hann í gæslu hjá konunni í næstu íbúð
á meðan eigandi hundsins var í vinnu. Svo
mikið lá á að lóga dýrinu, að þó konan
hringdi samstundis í eigandan var hundur-
inn dauður áður en hann kom á vettvang.
Er að uppsetningu sýningarinnar kom
voru þessu máli gerð skil á veggspjaldi.
:-*""** *»»* *...... *
THKXD
Hið umdeilda veggspjald.
Blaðagreinar um málið voru límdar upp.
einnig mynd af fallegum collie-liundi, sem
er látinn „hugsa“: VERÐ ÉG NÆSTUR?
Útdráttur úr 66. og 67. grein stjórnarskrár-
innar var rituð á veggspjaldið svo og áskor-
unarorð um að fólk láti hundana sína ekki
ganga lausa og valda öðrum ónæði.
Á sýninguna kornu margir gestir og voru
drjúga stund í sýningarbás dýraverndunar-
hópsins að skoða dýrin og lesa á hin ýmsu
veggspjöld. Og allt gekk vel fyrstu tvo sýn-
ingardagana, en . . . á síðasta degi sýningar-
innar gerðist sá atburður, að yfirlögreglu-
þjónninn í ICeflavík kom í Gagnfræða-
skólann gagngert til þess að krefjast þess að
veggspjaldið um j)etta margumrædda
hundamál yrði tekið niður. Nemendur sem
voru við eftirlit og gæslu í sýningarbásun-
um urðu skeliingu lostnir og var veggspjald-
ið fjarlægt. Því miður var leiðbeinandi
hópsins ekki staddur í skólanum er Jressi at-
burður átti sér stað, en eftir að liafa fengið
vitneskju um hann var strax kannað hjá
livorki meira né minna en tveim lögfræð-
18
DÝRAVERNDARINN