Dýraverndarinn - 01.05.1980, Side 25

Dýraverndarinn - 01.05.1980, Side 25
Sjötta skilningarvitið Fyrir nokkuð mörgum árum hélt læknafélagið breska fund, þar sem m. a. var rætt um svokallað „sjötta skilningarvit" dýra og var hið sjötta þannig, að dýrin fengju vitn- eskju um hættur, löngu áður en menn yrðu þeirra varir. Vísinda- mennirnir komust að þeirri niður- stöðu, að hundar m. a. hefðu slíkt skilningarvit. Eitt dæmi um þetta varð í jarð- skjálftunum iniklu í Belutschistan 1935, þegar fjöldi húsa hrundu. - Henry T. Holland, yfirlæknir við sjúkrahúsið þar, skýrði frá því, að jarðskjálftanóttina hefði einn vin- ur sinn vaknað við það, að hundur hans stóð við rúmið og togaði í náttföt hans. Maðurinn hélt að innbrotsþjófar mundu vera komnir inn í húsið, fór á fætur, tók sér marghleypu í hönd og leitaði um allt. Þar voru engir þjófar, en hundurinn stóð alltaf við útidyrn- ar og klóraði í hurðina. Maðurinn opnaði þá og fór út í garðinn, en í sama bili reið jarðskjálftinn und- ir og húsið hrundi. Mundi hann hafa orðið undir því, ef hundurinn hefði ekki gert honum aðvart. Sir Henry sagði líka frá tveim- ur svipuðum dæmum að hundar hafi orðið mjög órólegir nokkru áður en jarðskjálfti kom, og ekki lint látum fyrr en þeim var hleypt út. í íslenskum þjóðsögum er getið um nokkur dæmi þess, að dýr hafi hugboð um yfirvofandi hættu, eða séu gædd sjötta skilningarvitinu. Má þar t. d. nefna söguna um hrafninn, sem lokkaði stúlku í brott frá bæ skömmu áður en skriða féll á bæinn, og bjargaði með því lífi hennar. Getið er og þess með sannindum, að kveldið áður en jarðskjálftarnir miklu á Suðurlandi 1896 hófust, hafi fólk á nokkrum bæjum lent í mestu vandræðum með að koma kúnum í fjós. En á þessum bæjum hrundu fjósin í jarðskjálftunum. (Lesb. Mbl). En það voru fleiri en kýrnar, sem virtust hafa hugboð um jarð- skjálftana 1896, eftir því sem Tryggvi Gunnarsson skýrir frá í Dýravininum (8. hefti). Þar er haft eftir sannorðum manni, að í Ásukoti í Flóa hafi kisa legið með kettling sinn inni í baðstofu, en daginn fyrir jarð- skjálftana sást hún komin út á tún, dröslandi með kettlinginn. En morguninn eftir, þegar baðstofan var fallin, fannst kisa með kettling sinn úti í fjárhúsgarða, og var það hús eitt af fáum, sem uppi stóð á bæ þessum. Ennfremur er þess gjetiið, að hrafnar og aðrir fuglar, sem höfðu aðsetur sitt í Ingólfsfjalli og undir því, sáust daginn áður en hræring- arnar hófust fljúga þaðan í stórum hópum, ofan á sléttlendið og fram um allan Flóa, enda féllu víða skriður úr fjallinu í jarðskjálftun- um, svo að ekki hefði verið hollt að eiga þar náttból, hvorki í fjall- inu né undir því. Ur Dýravininum (14. hefti) er og eftirfarandi frásögn tekin: Snemma á sumrinu 1845 urðu menn þess varir að mýs voru að flytja sig af ofanverðu landi yfir Þjórsá og út í Gnúpverjahrepp. Var sá flutningur með þeim hætti, að mýsnar sátu á kúaskánum, sem voru harðar, og notuðu þær sem ferjubáta til flutnings yfir ána á svonefndu Gaukshöfðavaði, en þar var áin straumlítil. - Þetta sáu og sögðu sannorðir menn. Sama sum- ar hóf Hekla gamla upp raust sína og tók að gjósa. Lengi eftir þetta var á orði haft hve lítið var um mýs á Rangár- völlum og Landi, en veturinn næsta eftir gosið varð lítið varið fyrir músagangi vestan Þjórsár. En mýsnar hafa hugboð um fleira en eldgos og jarðskjálfta, enda hefur þjóðtrúin tekið mark á háttum þeirra. Hafa menn t. d. tek- ið eftir því, að það muni vita á harðan vetur, ef mikið er um músagang heima við bæina á haustnóttum, eða fyrri part vetrar, á meðan veðrátta er þó sæmilega góð. Annars virðist margt í veður- spám dýranna benda til þess, að þau séu gædd sjötta skilningarvit- inu, svo sem ótalmargar sögur af háttum dýra vitna um. DYRAVERNDARINN 25

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.