Dýraverndarinn - 01.05.1980, Síða 26
Stutt athugasemd
Hr. ritstjóri.
í 7.-8. tölublaði 1979 — 65.
árg. Dýraverndarans er grein eftir
formann Dýraverndunarsambands
íslands (SDÍ) Jórunni Sörensen,
og nefnist „Saga Dýraverndarans."
Greinarhöfundur tekur fram í
greininni: „Ekki er tækifæri hér
til að rekja í smáatriðum sögu þess
en aðeins stiklað á því helsta."
Þann 15. mars 1980 verða 65 ár
liðin frá því að Dýraverndarinn hóf
göngu sína og á því sama ári 95
ár frá því að 1. tbl. Dýravinarins
kom út. Tilefni skrifa formanns
SDÍ voru þessi tímamót, sem fram-
undan eru í störfum dýraverndun-
arfólks.
Guðmundur Gíslason Hagalín
fyrrv. ritstjóri Dýraverndarans rit-
aði ýtarlega dýrmæta grein í 3.—4.
tölubl. ritsins 1964 um hálfraraldar
afmæli dýraverdunarsamtaka á ís-
landi og í 1.—2. tbl. 1965 um
Dýraverndarann fimmtugan.
Ærin ástæða og verðugt tilefni
var að bæta við sögulegar greinar
Guðmundar jafn ýtarlegri frásögn
um störf samtakanna og útgáfu-
störfin þau 15 ár sem við hafa
bæst. ,
Ástæður til þess að ég bið fyrir
birtingu þessa greinarkorns eru
aðallega tvær. Formaður SDÍ sér
ástæðu til þess að telja upp alla
hina mætu ritstjóra ritsins frá upp-
hafi og ritnefndar frá 1972.
Vissulega hefur allt þetta áhuga-
sama fólk um dýravernd unnið rit-
inu og baráttumáli þess vel — en
úr því greinarhöfundur fór að
minnast á fyrsta innheimtu- og af-
greiðslumann ritsins, Jóhann Og-
mund Oddsson, og svo þann nú-
verandi, Jón ísleifsson, þá hefði
hún mátt nefna það ágæta fóik sem
fyllti árabilið milli þeirra.
Hversu vel sem ritstjórarnir rit-
stýrðu og skrifuðu þá hefur tilvera
ritsins engu síður hvílt á herðum
innheimtu- og afgreiðslumann-
anna.
Eg tel því okkur, sem að dýra-
vernd höfum unnið standa í það
mikilli þakkarskuld við þá, að við
getum þeirra allra við tímamót rits-
ins en teljum störf þeirra eigi til
„smáatriða", sem ekki er tækifæri
til í ritinu að stikla á.
Nöfn þeirra og starfstímabil eru
þessi:
1915—1922 Jóhann Ögmundur
Oddsson
1922—1929 Þorleifur Gunnars-
son.
1930—1956 Hjörtur Hanson
1956—1960 Þorgils Guðmunds-
son.
1961—1963 Unnur Hagalín
1963—1968 Ingimar Jóhannes-
son.
1969—1972 Ágúst Vigfússon
1972 og enn Jón ísleifsson.
Á árinu 1966 var tekið á leigu
húsnæði að Hjarðarhaga 26 í
Reykjavík fyrir fundi, geymslu á
upplagi ritsins og þaðan var það
afgreitt. Kom það í hlut Ingimars
að flokka upplagið og raða í hill-
ur, sem hann gerði af sinni al-
kunnu vandvirkni. Ágúst hélt þessu
ágætlega við. Þau Þorgils og Unn-
ur lagfærðu og komu í gott horf
spjaldskrá ritsins.
Þegar sá er þetta skrifar kom í
stjórn Dýraverndunarfél. íslands
1955 var upplag ritsins geymt í
miðstöðvarherbergi í verslunarhúsi
„Jóns Þorlákssonar og Normann"
við Ingólfsstræti. Þaðan var það
flutt í skrifstofu byggingarfél. Brú,
sem Þorbjörn Jóhannesson þáver-
andi formaður DÍ átti ítök í. Úr
þessum húsakynnum var svo upp-
lagið flutt í Hjarðarhaga 26.
Hin ástæðan er sú að formaður
SDÍ skýrir frá því, eftir að hafa
greint frá ritstjórn blaðsins frá
1972: „Síðan þá hefur blaðið al-
gjörlega verið skrifað í sjálfboða-
vinnu."
Að sönnu hafa sumir ritstjórar
Dýraverndarans fengið þóknun fyr-
ir ritstjórastörfin en þær greiðslur
hafa ávallt verið naum laun. Þau
ár sem ég starfaði með Guðmundi
Gíslasyni Hagalín, þá furðaði mig
oft á því hvað þessi þjóðkunni rit-
höfundur sætti sig við lága þókn-
un fyrir þau merku skrif sem báru
blaðið upp og vöktu athygli á mál-
stað dýra- og náttúruverndar.
Þá leyfi ég mér að taka fram, að
við öll sem ritað höfum í blaðið
auk ritstjórana, höfum gert það
„algjörlega í sjálfboðavinnu", sem
og önnur viðvik fyrir félagsskap-
inn og þar á meðal auglýsingasöfn-
un fyrir ritið.
26
DÝRAVERNDARINN