Heimir : söngmálablað - 01.01.1936, Qupperneq 34

Heimir : söngmálablað - 01.01.1936, Qupperneq 34
32 Fréttir F R É T T IR. Guðinundur Kristjánsson söngv- ari liefir dvalið i Ghicago und- anfarin ár og stundað þar söng- kennslu. í ameríska tónlistarritinu „Musical Leader“ er þess get- ið, að ein af ágætustu söngkon- um við „Metropolitan“, Greta Ljungberg, hafi lokið miklu lofsorði á einn nemanda G. K., Mari Hansen. Söng ungfrú Ilan- sen fyrst opinberlega með G. K. 1934, fór síðan til Sví])jóð- ar og vakti þar mikla athygli. Síðan hefir hún sungið í Chi- cago, við góðan orðstýr. Ungfrú Hansen hefir verið nemandi G. K. um þriggja ára skeið. * Karlakórinn „Þrestir“ söng í annað sinn í K.F.U.M.- húsinu í I-Iafnarfirði undir stjórn hr. Jóns ísleifssonar. Að- sókn var jsæmileg og viðtökur góðar. Á söngskránni voru 12 lög — flest gamlir kunningjar — og öll útlend, nema eitt, „Hrím“, eftir Friðrik Bjarnason organ- ista í Hafnarfirði, frumlegt lag og vel fallið til söngs. Karla- kórarnir íslenzku ættu að syngja meira af ísl. tónsmíðum og þannig örfa ísl. karlakórs- lagahöfunda til starfa. Einsöngva sungu þeir séra Garðar Þorsteinsson og Pálmi Ágústsson. Séra Garðar er löngu kunnur sem góður söng- maður, enda söng hann prýði- lega að þessu sinni. Pálmi er lítt reyndur og skortir lærdóm, en hann hefir mjög laglega rödd. Einnig sungu þeir séra Garðar og Ilallsteinn Hinriks- son tvísöng í „Ave Maria“ eftir Fr. Abt, og tókst það mjög sómasamlega. Þess gælti nokk- uð, að undirsöngur kórsins væri of sterkur. Einnig var fram- burði á texta oft ábótavant (flár á köfluin). En samtök voru alla jafna i góðu lagi, enda var stjórn söngstjórans nákvæm og lipur. Eg heyrði ]>essa söngsveit syngja í fyrra (hún var að vísu elcki alveg eins stór þá), og eg verð að segja, að ef eg hefði ekki þekkt þarna flest sömu andlitin aftur, þá hefði eg ekki trúað því, að þetta væri sama sveitin, — svo mikil var breyt- ingin og öll til hins betra. Það er augljóst, að að baki slíltra framfara liggur mikið erfiði og sterkur áhugi, bæði hjá söng- sveit og söngstjóra. Þá má held- ur ekki gleyma því, að kórinn hefir notið kennslu hjá liinum ágæta söngkennara S.Í.K. hr. Sig. Birkis. Haldi kórinn þannig áfram á þroskahrautinni, gelur hann ó- hikað gengið til leiks og haft sóma af. En eitt vildi eg ráð- leggja þessum kór (og yfirleitt öllum kórum): Iðkið meira veikan söng; hann er eins væn- legur til sigurs og hinn sterki. 21./2. ’36. S. Heiðar. FÉLAGSPRENTSMIÐJAN

x

Heimir : söngmálablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.